Vinnustaðafundur FÍN á Vestfjörðum á morgun 25. september
25. september á Ísafirði
Formaður Félags íslenskra náttúrufræðinga (FÍN) mun standa fyrir fundum með félagsmönnum á Vestfjörðum í þessari viku, þ.e. á morgun 25. september á Ísafirði að Suðurgötu 12.
Félagsmenn á Vestfjörðum hafa þegar fengið sendan tölvupóst frá félaginu og skráð sig til þátttöku á þann fundarstað sem þeim hentar og jafnframt bókað viðtöl við formann.
Í næstu tveimur vikum verða vinnustaðafundir á Vesturlandi. Félagsmenn á því svæði munu fá upplýsingar um skráningu senda í tölvupósti.
Allar frekari upplýsingar um vinnustaðafundi félagsins í vetur eru aðgengilegar á vefsíðu félagsins, hér.