Persónuverndarstefna FÍN

FÍN virðir friðhelgi einkalífs og tekur verndun persónuupplýsinga þinna alvarlega. Persónuverndarstefna FÍN nær yfir söfnun félagsins, notkun, birtingu, flutning og geymslu á persónuupplýsingunum þínum.

Þú getur skoðað og notað vefsvæði FÍN án þess að gefa upp nokkrar persónuupplýsingar. En ef þú skilur eftir persónuupplýsingar hér geturðu verið viss um að við munum ekki selja, leigja eða deila persónuupplýsingunum þínum með neinum öðrum, nema  þá aðeins að þeir geti hjálpað okkur að veita þér þá þjónustu sem þú baðst um, sbr. umfjöllun fyrir neðan.

Hér er samantekt á því hvernig FÍN tekur á réttindum þínum til friðhelgi einkalífs, söfnunar, nýtingar og vinnslu persónuupplýsinga þinna:

FÍN mun veita þér upplýsingar um þau gögn sem við söfnum og hvað við gerum við þau.

FÍN mun gera ráðstafanir og beita aðferðum til þess að varðveita og vernda upplýsingarnar þínar.

FÍN mun tryggja að persónuverndarréttindi þín séu virt og veita þér meira vald yfir þínum eigin upplýsingum.

FÍN mun nota upplýsingarnar sem þú gefur okkur í þeim tilgangi sem lýst er í stefnu okkar um persónuvernd. Það felur meðal annars í sér að veita þér þá þjónustu sem þú hefur óskað eftir.

FÍN mun ekki senda þér markaðsefni ef þú lætur okkur vita að þú viljir ekki taka við slíku. Hins vegar munum við halda áfram að senda þér mikilvægar upplýsingar um starf félagsins, boðun á aðalfund, kosningu um kjarasamninga o.fl.

Vinsamlegast hafðu samband við okkur í tölvupósti með því að skrifa til fin@bhm.is ef þú hefur frekari fyrirspurnir.

Vinsamlegast hafðu í huga að samantektin hér að ofan og persónuverndarstefnan hér að neðan hafa ekki samningsgildi og eru því ekki hluti af samningi þínum við okkur með fyrirvara um réttindi þín samkvæmt gildandi lögum.

Söfnun og meðhöndlun persónuupplýsinga

Persónuupplýsingar eru gögn sem nota má til að bera kennsl á og/eða hafa samband við tiltekinn einstakling.

Þú gætir verið beðin(n) um að gefa upp persónuupplýsingar hvenær sem þú átt í samskiptum við FÍN.

FÍN notar persónuupplýsingar í samræmi við þessa persónuverndarstefnu. Þú þarft ekki að veita þær persónuupplýsingar sem við höfum óskað eftir en ef þú kýst að gera það ekki getum við ekki afgreitt umsóknir þínar, veitt þér þjónustu né heldur brugðist við fyrirspurnum sem þú kannt að senda okkur.

Hér eru dæmi um þær tegundir persónuupplýsinga sem FÍN safnar og notar

Þær persónuupplýsingar sem við söfnum:

  • Þegar þú sækir um aðild að félaginu, skráir þig á námskeið, hefur samband við okkur, kunnum við að safna ýmsum upplýsingum, þ. á m. nafninu þínu, póstfangi, símanúmeri, netfangi, heppilegum samskiptamáta og bankareikningum.

Notkun okkar á persónuupplýsingum um þig

  • Þær persónuupplýsingar sem við söfnum gera okkur kleift að senda þér nýjustu fréttir og upplýsingar um væntanlega viðburði. Viljirðu ekki vera á póstlista okkar geturðu afþakkað hvenær sem er með því að senda tölvupóst.
  • Við munum nota persónuupplýsingar þínar, svo sem fæðingardag þinn og ár, til að staðfesta auðkenni þitt, aðstoða við auðkenningu notenda og ákvarða viðeigandi þjónustu fyrir þig. Til dæmis getum við notað fæðingardag eða kennitölu til að afgreiða umsóknir þar sem það á við.
  • Annað veifið munum við nota persónuupplýsingar um þig til að senda þér mikilvægar tilkynningar, t.d. upplýsingar um aðalfund félagsins, um kjarasamninga félagsins og atkvæðagreiðslur um samningana, þjónustukannanir o.fl. Þar sem þessar upplýsingar eru mikilvægar í samskiptum þínum við FÍN geturðu ekki afþakkað þessi samskipti.

Kökur og önnur tækni

Vefsvæði FÍN, tölvupóstskeyti og auglýsingar gætu nýtt „kökur“ og aðra tækni.  

Upplýsingar birtar þriðju aðilum

FÍN gerir tilteknar persónuupplýsingar aðgengilegar BHM í því skyni að fá upplýsingar til að geta afgreitt umsókn eða önnur mál sem þú hefur leitað til félagsins með. Þriðja aðila ber skylda til að vernda upplýsingar þínar.

Nauðsynlegt gæti verið – samkvæmt lögum, málaferlum og/eða beiðni frá opinberum aðilum að FÍN gefi upp persónuupplýsingar þínar. Við gefum upp upplýsingar um þig ef við teljum það nauðsynlegt eða viðeigandi af orsökum sem varða þjóðaröryggi, löggæslu eða annan almannahag.

Þessu til viðbótar og þrátt fyrir sérhvert ákvæði þessarar persónuverndarstefnu áskiljum við okkur rétt til notkunar og afhjúpunar á persónuupplýsingum og ópersónulegum upplýsingum í því skyni að rannsaka, koma í veg fyrir eða bregðast við lögbrotum, gruni um svik eða aðstæðum sem fela í sér mögulega hættu á líkamsskaða hjá öðrum einstaklingi, eða í öðrum þeim tilgangi sem lög kveða á um.

Verndun persónuupplýsinga

FÍN tekur öryggi persónuupplýsinga mjög alvarlega. Þegar FÍN geymir persónuupplýsingar frá þér notum við tölvukerfi með takmörkuðum aðgangi, hýst á stöðum sem varðir eru með efnislegum öryggisráðstöfunum. Gögn í skýi hjá hýsingaraðila eru geymd á dulkóðuðu sniði.

Þegar þú birtir færslu á netsamfélagssíðum FÍN eru persónuupplýsingarnar og efnið sem þú deilir sýnilegt öðrum notendum og þeir geta lesið það, safnað því eða notað það. Þú berð ábyrgð á þeim persónuupplýsingum sem þú kýst að deila eða senda við þessar kringumstæður. Ef þú gefur t.d. upp nafn þitt og netfang í færslu á umræðusvæði eru þær upplýsingar opinberar. Sýndu aðgát þegar þú notar þessa eiginleika.

Heilleiki og varðveisla persónuupplýsinga

FÍN mun varðveita persónuupplýsingar þínar eins lengi og þarf til að uppfylla það sem lýst er í þessari persónuverndarstefnu nema lög krefjist eða leyfi lengri varðveislutíma.

Aðgangur að persónuupplýsingum

FÍN veitir þér aðgang og afrit að gögnum í hvaða tilgangi sem er, þ.m.t. til að biðja okkur um að leiðrétta gögnin ef þau eru ónákvæm eða eyða gögnunum ef félaginu ber ekki skylda til að varðveita þau lögum samkvæmt. Við gætum hafnað því að vinna úr beiðnum sem eru lítilvægar/tilefnislausar, stofna friðhelgi annarra í hættu, eru sérlega óhagkvæmar eða krefjast aðgangs sem að öðru leyti er ekki krafist samkvæmt lögum á hverjum stað. Beiðnir um aðgang, leiðréttingu eða eyðingu má senda til fin@bhm.is.

Áhersla FÍN á persónuvernd þína

Til að tryggja öryggi persónuupplýsinganna þinna upplýsum við starfsfólk FÍN um reglur okkar varðandi persónuvernd og öryggi og framfylgjum með ströngum hætti öryggisráðstöfunum innan félagsins. 

Spurningar um persónuvernd

Ef spurningar eða athugunarefni koma upp varðandi persónuverndarstefnu eða gagnavinnslu FÍN eða ef þú vilt kvarta yfir hugsanlegu broti á  persónuverndarlögum skaltu hafa samband við okkur.

Þegar okkur berst spurning um persónuvernd mun persónuverndarfulltrúi okkar fara yfir samskiptin og leitast við að taka á því tiltekna athugunarefni eða fyrirspurn sem þú vilt fá svör við. Ef málið er umfangsmeira í eðli sínu gætum við óskað frekari upplýsinga frá þér. Öllum slíkum umfangsmeiri samskiptum er svarað. Ef þú sættir þig ekki við svar okkar geturðu beint kvörtun þinni til Persónuverndarstofnunar.