Hverjir eru í FÍN?
-
Mynd: Edda Sigurdís Oddsdóttir
FÍN er stéttarfélag fólks sem hefur lokið hafa námi á háskólastigi t.d. diplómu, bakkalárprófi eða sambærilegri menntun á háskólastigi.
Félagsmenn starfa á fjölbreyttum starfsvettvangi og hér má skoða frekari upplýsingar um hvað félagsmenn gera og hvernig félagið er samsett.
Við hvað fást félagsmenn?
Félagsmenn í FÍN sinna mjög fjölbreyttum störfum á íslenskum vinnumarkaði. Hér eru nokkur dæmi um þá flóru:
- Arkitektar
- Búfræðikandidatar
- Dýralæknar
- Eðlisfræðingar
- Efnafræðingar
- Erfðafræðingar
- Ferðamálafræðingar
- Fiskifræðingar
- Fornleifafræðingar
- Geislafræðingar
- Grafískir hönnuðir
- Grasafræðingar
- Haffræðingar
- Hagfræðingar
- Heilbrigðisgagnafræðingar
- Hjúkrunarfræðingar
- Hönnuðir
- Iðnhönnuðir
- Jarðeðlisfræðingar
- Jarðfræðingar
- Landfræðingar
- Landslagsarkitektar
- Lífeðlis- og lífefnafræðingar
- Lífeindafræðingar
- Líffræðingar
- Líftæknifræðingar
- Lyfjafræðingar
- Læknar
- Mannauðsstjórar
- Mannfræðingar
- Matvælafræðingar
- Meinatæknar
- Næringarfræðingar
- Sameindalíffræðingar
- Sálfræðingar
- Sjávarlíffræðingar
- Sjávarútvegsfræðingar
- Skógfræðingar
- Stjarneðlisfræðingar
- Stærðfræðingar
- Tannlæknar
- Tæknifræðingar
- Tölfræðingar
- Tölvunarfræðingar
- Umhverfisfræðingar
- Verkfræðingar
- Veðurfræðingar
- Viðskiptafræðingar
- Vistfræðingar
Hvar starfa félagsmenn?
Íslenskir náttúrufræðingar stofnuðu stéttarfélag 21. febrúar 1955. Á fyrstu árum félagsins voru félagar á bilinu 15-20, árið 1988 voru þeir orðnir 444 en eru í dag tæplega 1.800 (virkir og fullgildir félagar). Myndin hér til hliðar sýnir hlutfallslega skiptingu félagsmanna eftir starfsvettvangi fyrir fullgilda og virka félagsmenn.
Stærstur hluti félagsmanna starfar á opinberum vinnumarkaði (hjá ríki og sveitarfélögum) en félagsmönnum á almennum vinnumarkaði hefur fjölgað mikið á síðustu árum, einkum í lyfjaiðnaði.
Félagsmenn sem greiða félagsgjöld af atvinnuleysisbótum voru 28 í febrúar 2013. Ef tímabilið frá 2007 til 2013 er skoðað greiddu flestir félagsmenn félagsgjöld af atvinnuleysisbótum á miðju ári 2011 eða 48.
Heimild: Félagatal FÍN (DK), feb. 2013