Launagreiðendur

Á síðasta aðalfundi Félags íslenskra náttúrufræðinga þá lækkaði félagsgjaldið úr 0,7% af heildarlaunum í 0,65% af heildarlaunum frá og með 1. apríl 2021!

Iðgjaldagreiðslur til Félags íslenskra náttúrufræðinga (674) og í sjóði geta verið mismunandi eftir því hvaða kjarasamningur gildir um viðkomandi launþega:

 Ríki og sjálfseignastofnanir sem byggja á ríkissamningi

Tegund/Sjóður  Iðgjald
 Félagsgjald FÍN

0,65% af heildarlaunum 

 Orlofssjóður BHM  0,25% af heildarlaunum
 Starfsmenntunarsjóður BHM  0,22% af heildarlaunum
 Styrktarsjóður BHM   0,75% af heildarlaunum
 Starfsþróunarsetur háskólamanna  0,7% af heildarlaunum
 Sérstakt iðgjald skv.bókun 1  0,1% af heildarlaunum

Framlag Virk, starfsendurhæfingarsjóðs er 0,1% af heildarlaunum og er innheimt af LSR.

Sveitarfélög

 Tegund/Sjóður  Iðgjald
 Félagsgjald FÍN

0,65% af heildarlaunum

 Orlofssjóður BHM  0,25% af heildarlaunum
  Starfsmenntunarsjóður BHM  0,22% af heildarlaunum
  Styrktarsjóður BHM  0,75% af heildarlaunum
 Vísindasjóður FÍN  1,5% af dagvinnulaunum
 Starfsþróunarsetur háskólamanna  0,7% af heildarlaunum*

Framlag Virk, starfsendurhæfingarsjóðs er 0,1% af heildarlaunum og er innheimt af lífeyrrisjóði.

* Iðgjald í Starfsþróunarsetur háskólamanna tók gildi 1. september 2015 (þar áður var við síðustu samninga samið um iðgjald 0,1% sem var við síðustu samninga ráðstaðar til Starfsþróunarseturs háskólamanna) 

Reykavíkurborg

 Tegund/Sjóður  Iðgjald
 Félagsgjald FÍN

0,65% af heildarlaunum

 Orlofssjóður BHM  0,25% af heildarlaunum
 Starfsmenntunarsjóður BHM  0,22% af föstum dagvinnulaunum
 Starfsþróunarsetur háskólamanna  0,7% af heildarlaunum
 Styrktarsjóður BHM  0,75% af heildarlaunum
 Vísindasjóður FÍN  1,6% af dagvinnulaunum

Framlag til Virk, starfsendurhæfingarsjóðs er 0,1% af heildarlaunum og er innheimt af lífeyrissjóði.  

Almennur markaðurinn/Sjálfstætt starfandi

 Tegund/Sjóðir Iðgjald  Athugasemd 
 Félagsgjald FÍN  0,65% af heildarlaunum
 Orlofssjóður BHM  0,25% af heildarlaunum Skylduaðild að sjóðnum samkvæmt kjarasamningi SA og FÍN
 Sjúkrasjóður BHM  1% af heildarlaunum Skylduaðild að sjóðnum samkvæmt kjarasamningi SA og FÍN
 Starfsmenntasjóður BHM  0,22% af heildarlaunum Skylduaðild að sjóðnum samkvæmt kjarasamningi SA og FÍN
 Vísindasjóður FÍN  1,5% af dagvinnulaunum Valkvætt gjald
 Starfsþróunarsetur háskólamanna 0,7% af heildarlaunum Valkvætt gjald

Framlag til Virk, starfsendurhæfingarsjóðs er 0,1% af heildarlaunum og er innheimt af lífeyrissjóði.  

Framfærslustyrkir/Styrkþegar/Námslánaþegar

 Tegund/Sjóðir   Iðgjald  
Félagsgjald FÍN  0,65% af framfærslustyrknum
Orlofssjóður BHM  0,25% af framfærslustyrknum Skylduaðild
Sjúkrasjóður BHM  1% af framfærslustyrknum Skylduaðild
Starfsmenntasjóður BHM 0,22% af framfærslustyrknum Skylduaðild að sjóðnum samkvæmt kjarasamningi SA og FÍN

Vísindasjóður FÍN

1,5% af framfærslustyrknum Valkvætt gjald
Starfsþróunarsetur háskólamanna  0,7% af framfærslustyrknum Valkvætt gjald

Framlag til Virk, starfsendurhæfingasjóðs er 0,1% af heildarlaunum og er innheimt af lífeyrissjóði. 

Skilagreinar og greiðslur

Skilagreinar

Launagreiðendum ber fyrir 10. hvers mánaðar að senda sundurliðaðar skilagreinar fyrir síðasta liðinn mánuð. 

Þeir sem ekki geta skilað rafrænum skilagreinum í gegnum bókhaldkerfi geta slegið inn upplýsingar í sérútbúið rafrænt skilagreinaform fyrir innsendingar á skilagreinum.  Sjá nánar vefsíðu bókunarmiðstöðvarinnar.

Einnig má senda okkur skilagreinarnar rafrænt með eftirfarandi hætti:

Ekki þarf að setja inn notendanafn eða lykilorð þó beðið sé um það í sumum kerfum.  BHM úthlutar ekki neinum lykilorðum.

Heimilisfang fyrir skilagreinar sem berast í pósti:

Bandalag háskólamanna v/BIB
Borgartún 6
105 Reykjavík

Greiðslur

Greiðsluleiðir

Tvær greiðsluleiðir eru mögulegar:

  • Greiða kröfur sem myndast í netbanka launagreiðanda.
  • Greiða með millifærslu inn á bankareikning BHM  0515-26-550000 kt. 630387-2569.

BHM mælir með því að kröfur séu frekar greiddar í stað millifærslu.

Ef krafa hefur ekki stofnast í netbanka getur eftirfarandi átt við:

  • skilagrein hefur ekki borist Bókunar- og innheimtumiðstöð BHM.
  • launagreiðandi hefur ávallt millifært.

Gjalddagi og eindagi iðgjalda

  • Gjalddagi er 15. dagur næsta mánaðar á eftir launamánuði.
  • Eindagi er síðasti virki dagur gjalddaga mánaðar.

Eigi greiðsla sér ekki stað fyrir eindaga eru reiknaðir dráttarvextir frá gjalddaga til greiðsludags.

Ef greitt er með millifærslu reiknast dráttarvextir eftirá en ef greitt er með kröfu reiknast dráttarvextir við greiðslu.