28 sep. 2020

Stofnanasamningur undirritaður

Samningur milli FÍN og Stofnun Vilhjálms Stefánssonar hefur verið undirritaður og birtur á heimasíðu FÍN

Þann 23. september var undirritaður stofnanasamningur milli FÍN og SVS. Um er að ræða stofnanasamning sem tók gildi 1. janúar 2020, sbr. þó taka menntunarákvæði gildi 1. júní 2016 samkvæmt bókun þess efnis. Samningurinn hefur verið vistaður á vefsvæði félagsins undir stofnanasamningar - sjá hér. Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér efni samninganna og geta ávallt leitað til félagsins vakni upp einhverjar spurningar.

Samningsaðilum er þakkað fyrir samstarfið.