24 apr. 2020

Ágreiningur um atkvæðagreiðslu

Félagi íslenskra náttúrufræðinga (FÍN) barst í dag erindi frá Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, þ.e. formanni samninganefndar ríkisins (SNR) fyrir hönd ríkissjóðs, um að ráðuneytið telji að samkomulag um breytingu og framlengingu á kjarasamningi milli FÍN og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs hafi verið samþykkt í nýliðinni atkvæðagreiðslu. 

FÍN mun svara þessu erindi ráðuneytisins efnislega fyrir 29. apríl nk. og árétta að samningurinn sé felldur samkvæmt túlkun félagsins eins og áður hefur verið kynnt félagsmönnum.