Nýjar úthlutunarreglur hjá Starfsþróunarsetri Háskólamanna
Stjórn Starfsþróunarseturs háskólamanna hefur samþykkt nýjar úthlutunarreglur sem taka munu gildi 1. janúar 2019. Þær má sjá hér að neðan.
- Hækkun styrkja
Hámarksupphæð styrkja til félagsmanna fer úr 370.000 kr. í 425.000 kr. á tveggja ára tímabili.
- Núllstilling styrkja
Styrkir til félagsmanna verða núllstilltir frá áramótum. Allir félagsmenn sem eiga rétt á styrk eiga því rétt á 425.000 kr. frá 1. janúar 2019. Miðað er áfram við 300.000 kr. mánaðarlaun (2100 kr. iðgjald) sem viðmiðunargjald fyrir fullum styrk. En til að eiga rétt á hálfum styrk þarf iðgjald að vera að lágmarki 1050 kr.
- Skilafrestur reikninga
Skilafrestur reikninga verða þrír mánuðir frá lokum náms/ráðstefnu en ekki dagsetningu reiknings líkt og verið hefur.