Vinnustaðafundir FÍN á Vesturlandi á næstu tveimur vikum
2. október verða fundir á Hvanneyri, í Reykholti og í Borgarnesi, 4. október á Stykkishólmi, Grundarfirði og Ólafsvík og 10. september á Akranesi
Þann 2. október verða fundir á Hvanneyri, í Reykholti og í Borgarnesi, 4. október á Stykkishólmi, Grundarfirði og Ólafsvík og 10. október á Akranesi.
Félagsmenn á Vesturlandi hafa nú fengið sendan tölvupóst frá félaginu þar sem þeir eru beðnir um að skrá sig til þátttöku á þann fundarstað sem hentar og jafnframt að bóka viðtal við formann hafið þeir vilja til þess.
Þeir félagsmenn á Vesturlandi sem hafa ekki fengið tölvupóst með upplýsingum um skráningu eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu félagsins í gegnum netfangið fin@bhm.is. Skráningu þarf að vera lokið eigi síðar en kl. 12:00 á hádegi þann 1. október nk.
Komi til þess að þátttaka verði engin á fundi eða í viðtalstíma mun formaður fella niður þá fundartíma eða viðtalstíma og tilkynna um slíkt á vefsíðu félagsins. Því er mikilvægt að þeir félagsmenn sem ætla að mæta til fundar eða í viðtalstíma skrái þátttöku sína með því að smella á hlekk hér fyrir ofan.
Allar frekari upplýsingar um vinnustaðafundi félagsins í vetur eru aðgengilegar á vefsíðu félagsins, hér.