17 sep. 2018

Vinnustaðafundir FÍN á Norðurlandi vestra á miðvikudag og fimmtudag

19. september á Hólum í Hjaltadal og 20. september á Sauðárkróki

Formaður Félags íslenskra náttúrufræðinga (FÍN) mun standa fyrir fundum með félagsmönnum á Norðurlandi vestra í þessari viku. Á miðvikudag 19. september verður haldinn fundur á Hólum í Hjaltadal og á fimmtudag á Sauðárkróki. 

Félagsmenn á Norðurlandi vestra hafa þegar fengið sendan tölvupóst frá félaginu og skráð sig til þátttöku á þann fundarstað sem þeim hentar og jafnframt bókað viðtöl við formann.

Í næstu viku verða vinnustaðafundir á Vestfjörðum. Félagsmenn á því svæði munu fá upplýsingar um skráningu senda í tölvupósti. 

Allar frekari upplýsingar um vinnustaðafundi félagsins í vetur eru aðgengilegar á vefsíðu félagsins, hér.