28 feb. 2014

Félagið er tilbúið í átök!

Á starfsdegi trúnaðarmanna og stjórnar FÍN var farið yfir stöðu samningamála við opinbera viðsemjendur og lagt á ráðin með aðgerðir til að fylgja kröfum félagsins eftir.  Jafnframt var tilkynnt að fjármunir verkfallssjóðs eru lausir og hægt að grípa til þeirra þegar þörf krefur.  Stjórn sjóðsins kynnti úthlutunarreglurnar og lét þess getið að í sjóðnum eru 330 milljónir.  Einnig var stofnaður aðgerðarhópur félagsmanna sem hefur þegar tekið til starfa.  Frekari upplýsingar veitir formaður félagsins, Páll Halldórsson, s: 899-2482.