22 maí 2013

Breyting á félagsgjöldum

Aðalfundur FÍN ákvað að breyta félagsgjöldum hjá félagsmönnum sem starfa hjá hinu opinbera, þ.e.a.s. hjá þeim sem þiggja laun eftir kjarasamningum FÍN og ríkisins, Reykjavíkurborgar, Sambands sveitarfélaga og öðrum kjarasamningum sem byggja á ríkissamningi.  Breytingin tekur gildi frá og með 1. júní nk. og verður félagsgjaldið lækkað úr 1,2% í 1% af dagvinnulaunum.  Launagreiðendur hafa fengið tilkynningu um þessa breytingu.