7 maí 2014

Aðalfundur LSS

Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga (LSS) verður haldinn þriðjudaginn 20. maí kl. 16.00, í húsakynnum Sambands íslenskra sveitarfélaga að Borgartúni 30, Reykjavík. Á vef LSS kemur fram að allir sjóðfélagar sem og launagreiðendur og viðkomandi stéttarfélög eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti og eru þeir hvattir til að mæta.