3 júl. 2020

Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FÍN og Reykjavíkurborgar

Atkvæðagreiðsla um kjarasamningi FÍN og Reykjavíkurborgar, sem undirritaður var 25. júní sl., fór fram dagana 30. júní til 3. júlí 2020.

Á kjörskrá voru 67 og greiddu 35 atkvæði um samninginn. Kosningaþátttaka var því 52,239%.

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já sögðu 31 eða 88,57%

Nei sögðu 4 eða 11,43%

Enginn skilaði auðu.

Kjarasamningur FÍN og Reykjavíkurborgar skoðast því samþykktur.