Kjarasamningur undirritaður við Samtök atvinnulífsins!
Undirritaður hefur verið nýr kjarasamningur við Samtök atvinnulífsins og FÍN- Félags íslenskra náttúrufræðinga. Samningurinn byggir á fyrri kjarasamningi frá árinu 2021. Samninginn má skoða hér. Félagsfólk FÍN er hvatt til að kynna sér samninginn gaumgæfilega.
Töluverðar breytingar hafa verið gerðar á kjarasamningnum á ákvæðum um laun, þannig að starfsmaður, sem ekki fær að lágmarki þær launahækkanir sem kveðið er á um í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði, á rétt á rökstuddu viðtali við vinnuveitanda. Skal slíkt viðtal fara fram innan mánaðar frá því að formleg krafa þess efnis er sett fram.
Þá eru breytingar á orlofsrétti, en starfsmaður á nú rétt á 25 daga orlofi eftir sex mánaða starf. Orlof eykst einnig eftir fimm ár í sömu starfsgrein í 26 daga. Þá hefur réttur til fjarveru vegna veikinda barna verið rýmkaður og nær nú einnig til barna á aldrinum 13 til 16 ára. Þá er einnig í samningum bókun um samvinnu tengdri starfsmenntunarsjóði BHM.
Félagsfólk FÍN er hvatt til að skoða samninginn og hægt er að hafa samband við skrifstofu FÍN vegna fyrirspurna um samninginn.