Kjarasamningur FÍN og Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykktur
Niðurstöður liggja úr atkvæðagreiðslu um framlengingu á kjarasamningi FÍN og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem gildir frá 1. apríl 2024 og til og með 31. mars 2028.
Alls voru 77 á kjörskrá og var þátttaka 51,95%.
Niðurstöðurnar voru eftirfarandi:
- Alls samþykktu 34 aðilar kjarasamninginn eða 85%
- Alls höfnuðu 6 aðilar kjarasamningnum eða 15%
Í samræmi við ofangreindar niðurstöður tilkynnist hér með að kjarasamningur FÍN og Sambands íslenskra sveitarfélaga er samþykktur.