Kjarasamningur undirritaður við Samband íslenskra sveitarfélaga!
FÍN hefur gengið frá undirritun kjarasamnings við Samband íslenskra sveitarfélaga og verður hann kynntur félagsfólki á fjarfundi þann 6. janúar kl. 14:30 á nýju ári. Slóð á fundinn hefur verið send í tölvupósti.
Kjarasamningurinn verður aðgengilegur félagsfólki eftir kynningarfundinn ásamt öllum viðeigandi fundargögnum.
Atkvæðagreiðsla um samninginn hefst strax að loknum fundi þann 6. janúar og mun félagsfólk fá sendan kosningahlekk en ef einhverjum berst ekki hlekkur skal senda póst á fin(hja)fin.is og óska eftir honum.
Við hvetjum allt félagsfólk sem á aðild að þessum samningi og kosningarétt til að fjölmenna á kynningarfundinn og taka þátt í kosningunni.