29 nóv. 2023

Óskað eftir umsóknum um styrki í nýjan vinnuverndarsjóð

FÍN vekur athygli á að Vinnueftirlitið hefur framlengt fresti til að skila inn umsókn um styrki í nýjan vinnuverndarsjóð, en hann er nú til 12. desember. 

Sjóðurinn er samstarfsverkefni félags- og vinnumarkaðsmálaráðherra og Vinnueftirlitsins. Markmið hans er að efla rannsóknir á svið vinnuverndar og stuðla að bættri vinnuvernd á Ísland. Vinnuverndarsjóður er nýtt samstarfsverkefni félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins og Vinnueftirlitsins. Markmið hans er að efla rannsóknir á sviði vinnuverndar og stuðla að bættri vinnuvernd á íslenskum vinnumarkaði. Sjóðnum er ætlað að styrkja verkefni og rannsóknir sem miða að því.

Sjóðurinn er samstarfsverkefni félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins og Vinnueftirlitsins. Markmið hans er að efla rannsóknir á sviði vinnuverndar og stuðla að bættri vinnuvernd á íslenskum vinnumarkaði.

Vinnuverndarsjóður er nýtt samstarfsverkefni félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins og Vinnueftirlitsins. Markmið hans er að efla rannsóknir á sviði vinnuverndar og stuðla að bættri vinnuvernd á íslenskum vinnumarkaði. Sjóðnum er ætlað að styrkja verkefni og rannsóknir sem miða að því.

Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér nánar reglur um úthlutun styrkja úr Vinnuverndarsjóði en við mat á umsóknum verður einkum litið til verkefna og rannsókna er varða:

  • tengsl einstakra sjúkdóma og vinnutengdra einkenna við vinnuumhverfi
  • samfélagslegan og efnahagslegan ávinning af vinnuvernd
  • orsakir, tíðni og þróun vinnuslysa í ákveðnum starfsgreinum
  • jákvæða ímynd og viðhorf almennings til vinnuverndar
  • vitundarvakningu einstakra hópa á vinnumarkaði um vinnuvernd, svo sem starfsfólks sem skilur ekki íslensku, ungs fólks og starfsfólks er sinnir áhættusömum störfum.
  • þekkingu á mikilvægi góðrar vinnustaðamenningar
  • tengsl slæmra vinnuskilyrða og fjarveru starfsfólks
  • aukna vitund almennings um vinnutengda kulnun og hvernig megi fyrirbyggja hana
  • nýsköpun á sviði vinnuverndar
  • viðbrögð við áhrifum aukinnar sjálfvirkni og tæknivæðingar á vinnuumhverfið
  • áhrif samþættingar fjarvinnu og vinnu á vinnustað á vinnuvernd

Við fyrstu úthlutun sjóðsins verður lögð sérstök áhersla á verkefni og rannsóknir er varða tengsl einstakra sjúkdóma og vinnutengdra einkenna við vinnuumhverfi.

Gæði rannsóknar- eða verkefnaáætlunar ásamt vísindalegu gildi, nýmæli og mikilvægi er lagt til grundvallar við mat á styrkhæfi umsókna auk menntunar og hæfis umsækjenda. Á vef Vinnueftirlitsins má finna nánari leiðbeiningar um það sem þarf að koma fram í umsókn.

Stjórn sjóðsins annast mat á umsóknum um styrki en hana skipa fulltrúar frá Alþýðusambandi Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Vinnueftirlitinu.

Vinnuverndarsjóður hefur 10 milljónir króna til úthlutunar á árinu 2023.

Hámarksstyrkur til einstaks verkefnis er 4 milljónir króna.

Umsóknir sendist á vinnueftirlit@ver.is. Óska má eftir nánari upplýsingum í gegnum sama netfang.