Vísindasjóður
Vísindasjóður FÍN úthlutar styrkjum einu sinni á ári og er ætlað að styrkja félagsmenn til að sækja námskeið, festa kaup á fagbókum o.þ.h. Allir sem greitt er fyrir til sjóðsins eiga rétt á greiðslu úr honum í réttu hlutfalli við starfstíma og starfshlutfall, aðeins þarf að sækja um styrkinn á þessu veffangi: https://old.bhm.is/minar-sidur athugið að eingöngu er hægt að sækja um á þessum hlekk.
Hægt að skoða hvort greitt hafi verið í sjóðinn fyrir viðkomandi undir iðgjöld á „Mínum síðum“. Hafi sjóðfélagi sótt námskeið eða keypt fagbækur er hægt að draga þann kostnað frá styrknum á skattframtali. Sé enginn frádráttur frá styrknum er hann skattskyldur. Félagsmenn hjá sveitarfélögum eiga aðild að Vísindasjóði FÍN og einnig þeir á almennum markaði sem hafa samið um það í ráðningarsamningi. Aðrar upplýsingar um sjóðinn má finna hér: https://www.fin.is/sjodir-og-styrkir/visindasjodur/