Kjarasamningur RARIK ohf. og FÍN o.fl. samþykktur
Atkvæðagreiðsla um framlengingu og breytingar á kjarasamningi RARIK ohf. og FÍN o.fl., sem undirritaður var 10. júní sl. fór fram dagana 15. júní til 19. júní 2020. Á kjörskrá voru 44 og greiddu 33 atkvæði um samninginn. Kosningarþáttaka var því 75%.
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Þeir sem samþykktu: 26 eða 78,8%
Þeir sem samþykktu ekki: 6 eða 18,2%
Þeir sem tóku ekki afstöðu: 1 eða 3,0%
Framlenging og breytingar á kjarasamningi RARIK ohf. og FÍN o.fl. skoðast því samþykktur.