23 jan. 2020

Baráttufundur í Háskólabíói- 30. janúar kl. 17:00- Hingað og ekki lengra!

BHM, BSRB og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga boða til baráttufundar fyrir félagsmenn sína þar sem þess verður krafist að opinberir launagreiðendur gangi þegar í stað til kjarasamninga við starfsfólk sitt.

Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 30. janúar milli klukkan 17:00 og 18:00 í aðalsal Háskólabíós.
Streymt verður frá fundinum beint á fundi aðildarfélaga BHM og BSRB í Hofi á Akureyri og á fundum víðar um land (nánar auglýst síðar).

Nánari upplýsingar má finna á facebook-viðburði fundarins.

Leggðu þitt að mörkum, settu skilaboð á profílinn þinn á facebook.

Bein útsending verður frá baráttufundinum, skoðaðu staðsetninguna þar sem félagsmenn á landsbyggðinni geta safnast saman.

Kjarasamningar þorra opinberra starfsmanna hafa verið lausir frá 1. apríl 2019 og hafa viðræður við ríki og sveitarfélög gengið afar hægt. Þolinmæði félagsmanna og samninganefnda er löngu þrotin og kominn tími á að efla samstöðuna og undirbúa aðgerðir.


Á baráttufundinum í Háskólabíói munu eftirtalin flytja stutt ávörp:

  • Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
  • Laufey Elísabet Gissurardóttir, formaður Þroskaþjálfafélags Íslands, fyrir hönd BHM.
  • Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
  • Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands.
  • Árni Stefán Jónsson, formaður Sameykis.

Milli ávarpa munu Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinnar og Reykjavíkurdætur taka nokkur lög.

 

Félagsmenn aðildarfélaga sem búa utan höfuðborgarsvæðisins geta fylgst með fundinum í beinni útsendingu á Ísafirði, Akureyri, í Grundarfirði, Borgarnesi og Reykjanesbæ (smellið á plúsinn til að sjá nánari staðsetningu). Ef fleiri staðir bætast við verður það auglýst sérstaklega.