22 jan. 2018

Könnun til félagsmanna FÍN vegna stefnumótunar félagsins.

FÍN biður félagsmenn að svara könnun fyrir lok dags 29. janúar nk.  

Á árinu 2007 setti FÍN niður stefnumótun til ársins 2017. Nú er kominn tími til að móta stefnu félagsins til næstu ára.

Af því tilefni hafa félagsmenn FÍN fengið sendan tölvupóst með könnun. Markmið könnunarinnar er að komast að því hvað það er sem félagsmönnum finnst mikilvægt að stefnt verði að í starfi FÍN. 

Þar sem skoðanir félagsmanna skipta lykilmáli þegar kemur að því að móta stefnu félagsins biðjum alla félagsmenn að gefa sér tíma til að svara könnuninni. 

Sért þú félagsmaður FÍN en hefur ekki fengið sendan tölvupóst með könnuninni þá biðjum við þig að hafa samband við framkvæmdastjóra félagsins. 

Niðurstöðum verður safnað í byrjun næstu viku svo við biðjum félagsmenn að svara könnuninni fyrir lok dags 29. janúar nk.