- Sjóðurinn heitir Kjaradeilusjóður Félags íslenskra náttúrufræðinga. Heimili hans og varnarþing er í Reykjavík.
- Tilgangur sjóðsins er að styrkja félagsmenn FÍN sem ekki geta stundað vinnu vegna kjaradeilna sem FÍN er aðili að. Heimilt er einnig að greiða úr sjóðnum kostnað vegna framkvæmdar verkfalls, þó ekki venjulegan samningskostnað né þóknun fyrir verkfallsvörslu.
- Aðild að sjóðnum eiga þeir félagsmenn FÍN sem félagið semur fyrir. Árlegt framlag til sjóðsins skal ákveðið af stjórn FÍN.
- Stjórn sjóðsins skal skipuð fimm mönnum. Formaður og gjaldkeri FÍN eiga fast sæti í sjóðsstjórn en aðrir stjórnarmenn skulu kosnir á aðalfundi til tveggja ára, tveir annað árið og einn hitt árið. Hætti stjórnarmaður á fyrra ári kjörtímabils skal annar kosinn í hans stað á næsta aðalfundi og þá til eins árs. Varaformaður og ritari FÍN eru varamenn í sjóðsstjórn. Stjórn kjaradeilusjóðs velur formann Kjaradeilusjóðs úr hópi kosinna stjórnarmanna. Þeir sem gefa kost á sér í stjórn Kjaradeilusjóðs á aðalfundi félagsins, skulu tilkynna stjórn FÍN skriflega um framboð sitt fyrir 1. febrúar.
- Hlutverk sjóðsstjórnar er að annast vörslu og ávöxtun sjóðsins. Hún úthlutar einnig styrkjum úr honum. Fjárhagur sjóðsins skal aðskilinn frá félagssjóði FÍN.
- Stjórn Kjaradeilusjóðs skal gera samning við löggilda endurskoðendur sem skulu yfirfara reikninga sjóðsins.
- Sjóðsstjórn skal halda fundargerðir sem skulu undirritaðar. Í fundargerðum skulu koma fram allar ákvarðanir stjórnar kjaradeilusjóðs, þar með taldar allar styrkveitingar til félaga og ennfremur óreglubundin framlög til sjóðsins, ef einhver eru.
- Rétt til styrks úr sjóðnum á sérhver aðili að honum, sem ekki getur stundað vinnu sína vegna kjaradeilu FÍN. Þegar vinnudeila er fyrirsjáanleg skal stjórn sjóðsins gera áætlun um greiðslur úr sjóðnum og útbúa almennar reglur um úthlutun styrkja til félagsmanna. Að jafnaði skulu úthlutunarreglur ræddar á félagsfundi og leitað samþykkis hans.
- Stjórn Kjaradeilusjóðs er heimilt að undangengnum tilmælum stjórnar FÍN að styrkja önnur stéttarfélög sem eiga í kjaradeilum. Leita skal samþykkis félagsfundar í hverju tilfelli.
- Verði sjóður þessi af einhverjum ástæðum að hætta störfum, skal ákvörðun um það og ráðstöfun eigna sjóðsins tekin á aðalfundi.
- Reglum þessum má aðeins breyta á aðalfundi.
Kjaradeilursjóður FÍN
Tilgangur kjaradeilusjóðs er að styrkja félagsmenn FÍN sem ekki geta stundað vinnu vegna kjaradeilu sem félagið er aðili að. Aðild að sjóðnum eiga þeir félagsmenn FÍN sem félagið semur fyrir en árlegt framlag til sjóðsins er ákveðið af stjórn FÍN.