Fara í efni

Trúnaðarmenn

Trúnaðarmenn FÍN eru fulltrúar félagsins á hverjum vinnustað. Trúnaðarmenn eru tengiliðir milli félagsmanna á vinnustað og vinnuveitanda annars vegar og milli félagsmanna og félagsins hins vegar.

Hér að neðan er m.a. að finna lista yfir trúnaðarmenn FÍN á einstökum stofnunum og vinnustöðum. Einnig er hér að finna fræðsluefni fyrir trúnaðarmenn og aðra áhugasama um kjör og réttindi.

FÍN er umhugað að bjóða félagsmönnum upp á bestu þjónustu sem unnt er veita í hverju tilfelli. Í því felst m.a. að félagsmenn geti leitað upplýsinga um kjara- og réttindamál og fengið ráðgjöf/aðstoð hjá trúnaðarmanni á vinnustað.

Félagið leitast við að halda úti öflugu neti trúnaðarmanna. Félagsmenn hafa þann valkost að kjósa/velja úr sínum röðum trúnaðarmann/menn. Félagið hvetur félagsmenn til að nýta sér þennan rétt og félagið býður fram aðstoð og ráðgjöf við kosningu trúnaðarmanna.

Hafðu samband ef þinn vinnustaður er ekki á listanum.

Val á trúnaðarmanni skal tilkynna vinnuveitanda og stéttarfélagi þegar í stað, með meðfylgjandi eyðublöðum:

Almennur vinnumarkaður 

Samkvæmt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80/1938 er heimilt  að kjósa trúnaðarmann á hverri vinnustöð þar sem starfa a.m.k. fimm félagsmenn.

Opinber vinnumarkaður (sveitarfélög og ríkisstarfsmenn)

Í lögum nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna er fjöldaviðmið víðara og er heimilt að kjósa 2 trúnaðarmenn á vinnustöð þar sem 50 eða fleiri starfa. Samkvæmt fyrrnefndum lögum er heimilt að kjósa trúnaðarmenn fyrir félagssvæði eða hluta þess vegna starfsmanna á vinnustöðvum sem ekki uppfylla skilyrði um lágmarksfjölda. Einstökum stéttarfélögum er heimilt að semja um aðra skipan á vali trúnaðarmanna en að framan greinir. Þá er heimilt að sameinast um trúnaðarmenn ýmist fyrir landssvæði, fleiri en eina stofnun eða milli stéttarfélaga hjá opinberum starfsmönnum.

Samkvæmt "Samkomulagi um trúnaðarmenn hjá ríki, Reykjavíkurborg og ýmsum sjálfseignarstofnunum" er heimilt á þeim vinnustöðum þar sem starfsmenn vinna samkvæmt mismunandi vinnutímakerfum að kjósa einn trúnaðarmann hið  minnsta fyrir hvert vinnutímakerfi.

1. Á starfsstöðvum þar sem enginn trúnaðarmaður er fyrir eða þar sem kosning hefur runnið út án kosningar nýs trúnaðarmanns skal eftirfarandi gilda:

1.1. Félagið getur á hvaða tímapunkti sem er, þó að jafnaði eigi síðar en í mars á hverju ári, upplýsa félagsmenn um stöðu trúnaðarmanna á viðkomandi starfsstöð. Jafnframt skal félagið hvetja félagsmenn til að velja sér trúnaðarmann sé enginn til staðar.

1.2. Sé enginn trúnaðarmaður á starfsstöð og félagsmenn vilja kjósa sér trúnaðarmann skal félagið óska eftir framboðum meðal allra félagsmanna. Tilkynna skal félaginu um framboð.

1.2.1. Komi fram fleiri en eitt framboð skal félagið tilkynna með rafrænum hætti til viðkomandi félagsmanna um framboðin og gefa frest (eigi minna en 7 daga) til að leggja fram frekari framboð.

1.2.1.1. Að loknum fresti skal félagið sjá um undirbúning kosningar, tilkynna félagsmönnum á kjörskrá hverjir séu í framboði og tilgreinir kjördag. Kosning skal að jafnaði fara fram með rafrænum og leynilegum hætti.

1.2.1.2. Að lokinni kosningu skal félagið tilkynna félagsmönnum um úrslit kosninga og aðstoða við tilkynningu til atvinnurekanda, sé þess óskað. Jafnframt skal félagið birta upplýsingar um trúnaðarmann á heimasíðu félagsins.

1.2.1.3. Nýkjörinn trúnaðarmaður skal sjá um að atvinnurekandi undirriti viðeigandi eyðublað og kemur því rafrænt til félagsins.

1.2.2. Komi eingöngu fram eitt framboð skal félagið tilkynna, með rafrænum hætti, félagsmönnum um framboðið og gefa frest (eigi minna en 7 daga) til að leggja fram frekari framboð. Upplýsa skal að ef aðeins einn er í framboði muni hann teljast sjálfkjörinn.

1.2.2.1. Komi ekki fram frekari framboð getur félagið ákveðið að ekki komi til kosninga. Sá sem hefur boðið sig fram telst að fresti liðnum sjálfkjörinn og skal félagið aðstoða með tilkynningu til atvinnurekanda sé þess óskað.

1.2.2.1.1. Nýkjörinn trúnaðarmaður skal sjá um að atvinnurekandi undirriti viðeigandi eyðublað og kemur því rafrænt til félagsins.

1.2.2.1.2. Félagið skal tilkynna öllum viðkomandi félagsmönnum um trúnaðarmann og birta á heimasíðu sinni upplýsingar þar um.

1.2.2.2. Komi fram frekari framboð skal liður 1.2.1. eiga við.

 

2. Á starfsstöðvum þar sem fyrir er trúnaðarmaður skal eftirfarandi gilda:

2.1. Félagið skal upplýsa sitjandi trúnaðarmenn um lok kjörtímabil þeirra að jafnaði eigi síðar en í marsmánuði á því ári sem kjörtímabili lýkur en þó aldrei seinna en mánuði áður en því líkur. Félagið skal jafnframt senda sitjandi trúnaðarmanni drög að kjörskrá á sama tíma sem trúnaðarmenn þurfa að bera saman við fyrirliggjandi upplýsingar m.a. frá atvinnurekanda.

2.2. Að jafnaði skal sitjandi trúnaðarmaður tilkynna öllum félagsmönnum um að kosning trúnaðarmanns standi fyrir dyrum. Hafi félagið ekki þegar sent trúnaðarmanni kjörskrá skal hennar óskað frá félaginu telji trúnaðarmaður þörf á. Tilkynningar undir þessum lið skulu gerðar með sannanlegum og rekjanlegum hætti.

2.2.1. Trúnaðarmaður skal óska eftir frambjóðendum meðal viðkomandi félagsmanna og jafnframt skal upplýsa hvort hann hyggst gefa kost á sér áfram. Gefa skal hæfilegan frest (7 daga) til að tilnefna frambjóðendur.

2.2.2. Komi fram fleiri en eitt framboð skal trúnaðarmaður tilkynna viðkomandi félagsmönnum um framboðin og gefa frest (eigi minna en 7 daga) til að leggja fram frekari framboð.

2.2.2.1. Að loknum fresti skal trúnaðarmaður sjá um undirbúning kosningar, tilkynna félagsmönnum á kjörskrá hverjir séu í framboði og tilgreina kjördag. Kosning skal að jafnaði fara fram með rafrænum leynilegum hætti og skal félagið aðstoða við slíkt sé þess óskað.

2.2.2.2. Að lokinni kosningu skal trúnaðarmaður tilkynna félagsmönnum um úrslit kosninga.

2.2.2.3. Nýkjörinn trúnaðarmaður skal sjá um að atvinnurekandi undirriti viðeigandi eyðublað og kemur því rafrænt til félagsins.

2.2.2.4. Félagið skal birta á heimasíðu sinni upplýsingar um trúnaðarmann.

2.2.3. Komi eingöngu fram eitt framboð skal trúnaðarmaður tilkynna, að jafnaði með rafrænum hætti, félagsmönnum um framboðið og gefa frest (eigi minna en 7 daga) til að leggja fram frekari framboð. Upplýsa skal að ef aðeins einn er í framboði muni hann teljast sjálfkjörinn.

2.2.3.1. Komi ekki fram frekari framboð getur trúnaðarmaður ákveðið að ekki komi til kosninga. Sá sem hefur boðið sig fram telst að fresti liðnum sjálfkjörinn og skal félagið aðstoða með tilkynningu til atvinnurekanda sé þess óskað.

2.2.3.1.1. Nýkjörinn trúnaðarmaður skal sjá um að atvinnurekandi undirriti viðeigandi eyðublað og kemur því rafrænt til félagsins.

2.2.3.1.2. Trúnaðarmaður skal tilkynna öllum viðkomandi félagsmönnum um kjör trúnaðarmans.

2.2.3.1.3. Félagið skal birta á heimasíðu sinni upplýsingar um trúnaðarmann.

2.2.3.2. Komi fram frekari framboð skulu liðir 2.2.2.1. til 2.2.2.4. eiga við.

Á kjörskrá eru allt félagsfólk með kosningarrétt sem starfa á viðkomandi starfsstöð og/eða fyrir viðkomandi vinnuveitanda. Kosningarétt hefur allt félagsfólk sem eru með fulla aðild að félaginu þegar kosning á sér stað. Athugið að starfsfólk í fæðingarorlofi, foreldraorlofi, launalausu leyfi eða í veikindaleyfi á einnig að vera á kjörskrá.

Félagið skal senda sitjandi trúnaðarmanni drög að kjörskrá að jafnaði í mars það ár sem kjörtímabil trúnaðarmanns rennur út en þó aldrei seinna en mánuði áður en því líkur. Trúnaðarmaður getur ávallt óskað eftir kjörskrá frá félaginu ef við á. Sitjandi trúnaðarmenn þurfa að bera þennan lista saman við fyrirliggjandi upplýsingar m.a. frá atvinnurekanda. Sé einhverjum ofaukið eða ef einhvern vantar þarf að leiðrétta kjörskrána og senda hana til félagsins. Félagið sker úr um ef vafi liggur fyrir í tengslum við kjörskrá.

Kjörstjórn sér um allan undirbúning kosningar trúnaðarmanns/trúnaðarmanna

Félagsmenn FÍN á hverri starfsstöð geta ávallt ákveðið að tilnefna kjörstjórn vegna kjörs trúnaðarmanna eins venjubundið hefur verið, sjá neðangreindar verklagsreglur. Félagið tekur almennt stöðu kjörstjórnar þegar rafræn kosning á sér stað. Tilnefning kjörstjórnar er ekki krafa af hálfu félagsins heldur valkvæður möguleiki fyrir félagsmenn.

Kjörstjórn sér um allan undirbúning kosningar trúnaðarmanns/trúnaðarmanna. Áður en kjörstjórn er tilnefnd skal sitjandi trúnaðarmaður bera kjörskrá saman við upplýsingar frá atvinnurekanda og leiðrétta ef við á.

Verklagsreglur

1. Trúnaðarmenn senda, með rafrænum hætti, félagmönnum ósk eftir tilnefningum í kjörstjórn.

1.1. Bjóði enginn sig fram velur trúnaðarmaður 2 í kjörstjórn.

2. Kjörstjórn tilkynnir öllum félagsmönnum að kosning trúnaðarmanns standi fyrir dyrum og hverjir sitji í kjörstjórn.

3. Kjörstjórn sendir á alla sem eru á kjörskrá og óskar eftir frambjóðendum og getur þess jafnframt hvort núverandi trúnaðarmaður gefi kost á sér áfram. Gefinn skal hæfilegur frestur (7 daga) til að tilnefna frambjóðendur.

4. Kjörstjórn tilkynnir félagsmönnum á kjörskrá hverjir séu í framboði og tilgreinir kjördag. Kosning skal að jafnaði vera leynileg.

5. Kjörstjórn gefur út kjörseðla og setur upp kjörkassa þar sem félagsmenn eiga að afhenda atkvæði sitt.

5.1. Unnt er að hafa kosningu með rafrænum hætti. Heimilt er að hafa rafræna kosningu og getur félagið séð um hana ef kjörstjórn óskar þess. Kosning skal í öllum tilvikum vera leynileg. (Ef aðeins einn er í framboði til trúnaðarmanns er hann sjálfkjörinn trúnaðarmaður).

Kjörstjórn telur atkvæði eftir að kosningu er lokið. Sá/þeir sem fá flest atkvæði teljast löglega kosnir trúnaðarmenn.

Kjörstjórn tilkynnir atvinnurekanda, félaginu og félagsmönnum um niðurstöðu kosningarinnar.

Kjörstjórn sér til þess að atvinnurekandi undirriti þar til gert eyðublað og kjörstjórn kemur því eyðublaði til félagsins.

Trúnaðarmaður telst ekki fá réttarstöðu og lögbundna vernd trúnaðarmanns nema að kosning hafi verið tilkynnt skriflega og sannanlega til vinnuveitanda á umræddu eyðublaði.

 

Listi yfir trúnaðarmenn FÍN

VinnustaðurNafn trúnaðarmannsKosning útrunnin
Framkvæmdasýsla ríkisinsFriðrik Óttar Friðriksson  Október 2025
HafrannsóknunarstofnunSigurvin Bjarnason
Sólrún Sigurgeirsdóttir
Mars 2026
Október 2026
Háskóli Íslands/Tilraunastöð í meinafræði að KeldumEdda B. Hafstað ÁrmannsdóttirJanúar 2025
ÍSOR - Íslenskar orkurannsóknirHelga Margrét HelgadóttirMars 2026
Land og skógurÓlafur Eggertsson
Sigríður Hrefna Pálsdóttir
Júní 2025
Júní 2025
Landmælingar ÍslandsSteinunn Elva GunnarsdóttirSeptember 2025
Landspítali Háskólasjúkrahús/BlóðbankinnFreygerður J. SteinsdóttirOktóber 2026
Landspítali Háskólasjúkrahús/veirudeildKári Már ÁsdísarsonOktóber 2026
LyfjastofnunGunnar Þ. GunnarssonNóvember 2024
Matís ohf. Halla HalldórsdóttirNóvember 2025
MatvælastofnunHulda Soffía JónasdóttirApríl 2027
NáttúrufræðistofnunHeiðrún Eiríksdóttir (Akureyri)
Kristján Jónasson (Garðabær)
Rannveig Thoroddsen (Garðabær)
Apríl 2026
Mars 2026
Mars 2026
Náttúrustofa VesturlandsJakob StakowskiÁgúst 2024
Nýr LandspítaliÁsdís IngþórsdóttirJúlí 2025
ORF Líftækni hf.Hildur Björg BirnisdóttirJanúar 2025
Rannsóknamiðstöð Íslands/RANNÍS Óskar Eggert Óskarsson*Mars 2027
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins ehf.Guðrún Eik Skúladóttir
Sigríður Ólafsdóttir
 
ReykjavíkurborgBjörg Helgadóttir
Ingvar Jón Bates Gíslason
Svava S. Steinarsdóttir
Maí 2025
Maí 2025
Maí 2025
SkipulagsstofnunBerglind SigurðardóttirFebrúar 2025
Umhverfis- og orkustofnunKristín Kröyer
Matthildur Bára Stefánsdóttir
Janúar 2027
Október 2027
Veðurstofa ÍslandsKristín Elísa Guðmundsdóttir
Benedikt G. Ófeigsson
Eiríkur Örn Jóhannesson
Október 2024
Október 2024
Desember 2024

*Sameiginlegur trúnaðarmaður fyrir öll stéttarfélög BHM á vinnustaðnum.