Fara í efni

Orlofssjóður

Ertu á leiðinni í frí? Orlofssjóður BHM hefur það markmið að auðvelda félögum að njóta orlofstöku sem best og býður upp á fjölmarga valkosti fyrir félaga.

alttext

Allt félagsfólk FÍN hefur aðgang að Orlofssjóði BHM.

Á bókunarvef orlofssjóðssins eru m.a. upplýsingar um orlofshús og íbúðir hér á landi, afsláttarbréf fyrir flug og gistingu, útilegukort og veiðikort auk afslátta

Hægt er að skoða hvað er í boði og hvað er laust án þess að vera innskráður en til að bóka eða kaupa er nauðsynlegt að skrá sig inn á bókunarvef sjóðsins.

Orlofssjóður BHM er opinn fyrir alla sjóðsfélaga en flest allir félagsmenn í FÍN eiga aðild að Orlofssjóði BHM.

Orlofssjóður BHM á fjölda orlofshúsa og íbúðir víða um land sem eru í heilsársleigu, auk afsláttaávísana í flug, hjá ferðafélögum, vegna veiði og hótelgistingar.  

Hægt er að fylgjast með því helsta sem sjóðurinn hefur upp á að bjóða hverju sinni með því að skrá sig á póstlista hans hér.

Bókanir og nánari upplýsingar má finna á bóknunarvef Orlofssjóðs BHM.

Félagsmenn sem greiða ævigjald í Orlofssjóð BHM þegar þeir hefja töku lífeyris geta lagt fram kvittun fyrir greiðslu á skrifstofu FÍN og óskað eftir endurgreiðslu á gjaldinu ef þeir uppfylla þau skilyrði sem sett eru fyrir endurgreiðslunni.

  • Sjóðfélagi hefur 24 mán eftir að hafa lokið störfum til þess að óska eftir ævigjaldi (frá því að síðustu iðgjaldagreiðslur bárust).
  • Ævisjóðfélagar geta ekki sótt um á úthlutunartímabilum (páskar og sumar) og eru ekki í forgangsbókun þegar það opnar fyrir þá sem fengu synjað eða hættu við úthlutaða bókun.
  • Ævisjóðfélagar geta þó bókað þegar það opnar fyrir alla og bókað það sem afbókast á þessum tímabilum. ATH þessi breyting á við um alla sem greitt hafa ævigjald og þá sem munu greiða ævigjaldið.
  • Þeir sem greitt hafa ævigjaldið eftir 1.janúar 2022 en hafa ekki nýtt sér orlofssjóðinn að neinu leyti síðan (þ.e. bókað bústað, keypt gjafabréf, kort eða Ferðaávísun) geta ef þeir vilja óskað eftir endurgreiðslu á ævigjaldinu með því að senda tölvupóst á sjodir@bhm.is 

Ferðaávísun nýtist í gistingu og gönguferðir

Hægt er að kaupa Ferðaávísun með góðri niðurgreiðslu á orlofsvef BHM. Ferðaávísunin er mjög nytsamleg, hægt er að nota hana til að kaupa gistingu hjá mörgum samstarfsaðilum um land allt, gönguferðir hjá ferðafélögum og hjá veiðifélagi.

Niðurgreiðslan er 35% af heildarupphæð, þó að hámarki 25.000 kr. árið 2025.