Fara í efni

Lög og reglur

Lög FÍN eru endurskoðuð á aðalfundi ár hvert. Á aðalfundi 2025 var ákveðið að skipa sérstaka laganefnd sem hafði það hlutverk að endurskoða lögin í heild sinni og uppfæra þau í takt við hlutverk félagsins. Ný og endurskoðuð lög félagsins voru samþykkt á aðalfundi 26. mars 2026 og eru aðgengileg hér að neðan, bæði sem heildarskjal og sem texti á vefnum.

1 Félagið

1.1 Almennt

Félagið heitir FÍN - Félag íslenskra náttúrufræðinga og á ensku FÍN – The Union of Natural Scientists in Iceland. Nafn félagsins er tvískipt og er heimilt að nota annað nafnið eða bæði eftir þörfum hverju sinni. Félagssvæði þess er landið allt. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.  

1.2 Hlutverk og tilgangur

Félagið er fag- og stéttarfélag og vill ávallt vera fyrsti valkostur háskólamenntaðra einstaklinga. Hlutverk þess og tilgangur er:

  1. Að standa vörð um og vinna að bættum kjörum og kjarasamningsbundnum réttindum félagsfólks óháð uppruna þeirra.
  2. Að gera kjarasamning fyrir félagsfólk sitt, hvort heldur er á almennum markaði eða hjá hinu opinbera.
  3. Að tryggja aðgengi félagsfólks að upplýsingum um réttindi og kjör sín og aðra hagsmuni sem tengjast félaginu.
  4. Að vinna að því að bæta réttarstöðu sjálfstætt starfandi sérfræðinga og efla samkeppnishæfni þeirra.
  5. Að stuðla að samvinnu, samheldni og góðri fagþekkingu félagsfólks í gegnum fagfélög þess og að kynna fyrir almenningi mikilvægi starfa félagsfólks.
  6. Að stuðla að framgangi fagsviða félagsfólks í samfélaginu og þeirrar menntunar sem þau grundvallast á.
  7. Að kynna félagið fyrir verðandi/mögulegu félagsfólki og vinna að tengslum við nemenda- og hagsmunafélög.
  8. Að stuðla að og standa vörð um öflugt sjóðakerfi fyrir félagsfólk þvert á markaði.
  9. Að stuðla að sterku trúnaðarmannakerfi á vinnustöðum og miðla fræðslu til félagsfólks.
  10. Að eiga í uppbyggilegum samskiptum eða samstarfi við önnur fag- og stéttarfélög með hagsmuni félagsfólks að leiðarljósi.

1.3 Heildarsamtök

Félagið er aðili að Bandalagi háskólamanna (BHM).

Stjórn skipar fulltrúa félagsins á vettvangi BHM, þar á meðal á aðalfund og stefnumótunarþing bandalagsins. Þá leggur stjórn til framboð félagsfólks í einstakar trúnaðarstöður innan BHM. Félagsfólk sem gegnir trúnaðarstörfum fyrir FÍN skal ganga fyrir við val á fulltrúum.

Formaður félagsins situr að jafnaði í formannaráði BHM í samræmi við gildandi lög þess. Stjórn skipar varamann formanns í formannaráði.

1.4 Aðild að félaginu  

1.4.1 Aðild

Þeir sem hafa lokið a.m.k. bakkalár-prófi eða sambærilegri menntun og starfa á þeim sviðum sem félagið hefur samningsumboð fyrir geta fengið aðild að félaginu. Stjórn er heimilt að hafna aðild að félaginu telji hún að félagið geti ekki samið um viðkomandi starf í kjarasamningi.

1.4.2 Nemaaðild

Nemaaðild er tímabundin aðild að félaginu fyrir námsmenn í grunnnámi á háskólastigi. Nemaaðild varir að hámarki í fimm ár. Nemaaðild veitir full félagsréttindi.

1.4.3 Undanþáguheimildir

Stjórn er heimilt að veita undanþágu frá skilyrði um lágmarksmenntun, sbr. gr. 1.4.1, og veita viðkomandi aðila aðild að félaginu krefjist starf viðkomandi prófs á háskólastigi eða ígildi þess. Stjórn er jafnframt heimilt að veita undanþágu frá lágmarksmenntun, sbr. gr. 1.4.1, til þeirra sem hafa formlega prófgráðu á háskólastigi eða gegna sérfræðistörfum sem krefjast alla jafna háskólamenntunar geti félagið haft samningsumboð vegna viðkomandi starfs. Stjórn skal birta á vefsíðu félagsins veittar undanþágur.

1.5 Aðildarumsókn

Félagsaðild myndast sjálfkrafa þegar félagsgjöld hafa verið greidd í félagið fyrir hönd eða af félagsfólki sem uppfyllir aðildarskilyrði, sbr. gr. 1.4. Málefni tengd aðild eru afgreidd af starfsfólki félagsins, eða stjórn þegar uppi eru vafaatriði er varða aðildarskilyrði.  

Kjörgengi og kosningarréttur eru háð því að félagsfólk hafi greitt félagsgjöld til félagsins síðustu 6 mánuði.

1.6 Úrsögn og óvirk félagsaðild

Úrsögn úr félaginu verður að berast skriflega til félagsins frá félaga og tekur gildi um önnur mánaðamót frá því að hún berst.  

Hafi vinnustöðvun verið boðuð við móttöku úrsagnar úr félaginu tekur úrsögn ekki gildi fyrr en að slíkum aðgerðum loknum.

Félagsaðild telst óvirk hafi greiðslur félagsgjalda ekki borist félaginu í þrjá mánuði. Í óvirkri félagsaðild felst að viðkomandi er félagi, en nýtur ekki kosningaréttar eða kjörgengis. Félagsaðild virkjast aftur berist greiðsla félagsgjalds á ný.

Félagsaðild verður ekki óvirk hafi félagsgjöld ekki borist félaginu vegna sérstakra aðstæðna hjá viðkomandi s.s. launalauss leyfis, náms, fæðingarorlofs eða greiðslufalls vinnuveitanda. Stjórn skal meta og skera úr um slík tilfelli.

1.7 Félagsgjöld

Félagsfólki ber að greiða félagsgjöld til félagsins og skulu gjöldin ákveðin á aðalfundi. Tillögur að félagsgjöldum skulu berast stjórn eigi síðar en viku fyrir aðalfund.  

2 Fundir og félagskosningar

2.1 Aðalfundur

Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins.  

Aðalfund skal halda eigi síðar en 15. maí ár hvert og ákveður stjórn dagsetningu fundarins. Aðalfundur skal auglýstur á vefsvæði félagsins með minnst viku fyrirvara. Með slíkri auglýsingu telst aðalfundur vera löglega boðaður. Samhliða slíkri auglýsingu skal félagið senda fundarboð á skráð netföng alls fullgilds félagsfólks. Stjórn getur ákveðið að aðalfundur fari fram rafrænt í fjarfundi að hluta eða öllu leyti og skal geta þess í fundarboði hvort um staðfund eða fjarfund sé að ræða. Stjórn getur farið fram á að félagsfólk forskrái mætingu á aðalfund. Aðeins félagsfólk með kjörgengi getur gefið kost á sér til þeirra embætta sem kosið er um á aðalfundi og skal þá tilkynna kjörstjórn FÍN skriflega/rafrænt ​​​​um framboð sitt fyrir 1. mars.

Dagskrá skal tilgreind í fundarboði. Aðalfundur er lögmætur sé löglega til hans boðað.

Sérstök verkefni aðalfundar eru:

  1. Formaður flytur skýrslu stjórnar um félagsstarfið á liðnu starfsári.
  2. Lagðir fram endurskoðaðir ársreikningar félagsins og sjóða þess.
  3. Tillögur um lagabreytingar.
  4. Lagðar fram starfsreglur kjaradeilusjóðs til samþykktar.
  5. Ákvörðun um félagsgjöld.
  6. Stjórnarkjör.
  7. Kosning í kjararáð.
  8. Kosning í kjörstjórn.
  9. ​​​Kosning í stjórn kjaradeilusjóðs.
  10. Kosning í siðanefnd.
  11. Önnur mál.

2.2 Aukaaðalfundur  

Stjórn er heimilt að boða til aukaaðalfundar og gilda þá sömu frestir og ef um aðalfund væri að ræða.

2.3 Félagsfundir

Félagsfundi skal halda þegar stjórn félagsins sér ástæðu til og skulu þeir boðaðir með tryggilegum hætti. Þá er stjórn félagsins skylt að boða til félagsfundar ef a.m.k. 30 fullgildir meðlimir félagsins óska þess skriflega og tilgreina fundarefni. Skal boðað til hans með sama hætti og gildir um aðalfundi.

2.4 Kosningar

Meginreglan er sú að allar kosningar í embætti á vegum félagsins, skv. ​​3. kafla laganna, skulu vera skriflegar/rafrænar og leynilegar, ef ekki er sjálfkjörið.

Kjörstjórn sem kjörin er af aðalfundi annast framkvæmd kosninga til embætta í félaginu, sbr. gr. 3.5.

3 Stjórnskipan félagsins

3.1 Stjórn  

Stjórn félagsins skal skipuð sjö meðlimum félagsins: Formanni, varaformanni og fimm aðalfulltrúum úr röðum félagsfólks. Tveir fulltrúar skulu kjörnir til vara. Stjórn fer með æðsta vald félagsins á milli aðalfunda og er málsvari þess.  

Aðalfulltrúar stjórnar eru kosnir á aðalfundi, eða í aðdraganda hans eftir að framboðsfresti lýkur, til tveggja ára í senn. Kjósa skal tvo aðalfulltrúa og einn varafulltrúa sama ár og varaformaður er kosinn og þrjá aðalfulltrúa og einn varafulltrúa hitt árið. Stjórn skiptir með sér verkum með kosningu í eftirfarandi embætti: Ritara, gjaldkera og þriggja meðstjórnenda.  

Stjórn ber ábyrgð á rekstri félagsins, framkvæmdum, fjárreiðum, launakjörum, skipulagi skrifstofu og félagsstarfs. Stjórn heldur utan um fjárreiður sjóða sem ekki hafa kjörna stjórn af aðalfundi og setur þeim starfsreglur. Stjórn er heimilt að skipa tímabundnar nefndir og starfshópa til þess að vinna að afmörkuðum málum félagsins. Stjórn skal setja sér starfsreglur sem skulu endurskoðaðar í kjölfar aðalfundar.  

Stjórn ræður framkvæmdastjóra til þess að annast framkvæmd ákvarðana stjórnar og verkefna félagsins og skal viðkomandi vera æðsti stjórnandi á skrifstofu félagsins. Framkvæmdastjóri skal að jafnaði sitja fundi stjórnar þar sem viðkomandi hefur málfrelsi og tillögurétt. Framkvæmdastjóri sér ásamt formanni um undirbúning og skipulagningu stjórnarfunda og tryggir að mál séu sett fram með fullnægjandi hætti.

Heimilt er að endurkjósa stjórnarmeðlimi, en enginn má þó sitja í stjórn lengur en í átta ár samfellt. Hætti meðlimur stjórnar á fyrra ári kjörtímabils eða sé hann kosinn til annars embættis innan félagsins á aðalfundi áður en kjörtímabil hans rennur út, ​​​​​​skal annar kjörinn í hans stað til eins árs.  

Séu framboð færri en embætti í stjórn, kjararáð, sjóði eða nefndir á vegum félagsins skal stjórn félagsins tilnefna fulltrúa.

3.2 Afsögn stjórnar

Komi til þess að meirihluti stjórnar, eða stjórn í heild sinni, segi af sér störfum skal hún boða til aukaaðalfundar, sbr. gr. 2.2. Á honum fari að lágmarki fram öll þau störf aðalfundar sem nauðsynleg eru við stjórnarskipti.

3.3 Formaður og varaformaður

Formaður félagsins er kjörinn sérstaklega á aðalfundi eða í aðdraganda hans eftir að framboðsfresti lýkur og er kjörtímabil hans fjögur ár. Formaður er talsmaður félagsins og oddviti stjórnar þess sem og kjararáðs.  

Varaformaður er kjörinn sérstaklega á aðalfundi, eða í aðdraganda hans eftir að framboðsfresti lýkur, á oddatöluári, til tveggja ára í senn. Varaformaður sinnir skyldum formanns að honum forfölluðum. Stjórn eða formaður geta auk þess falið varaformanni sérstök verkefni.  

Enginn má gegna stöðu formanns eða varaformanns lengur en í átta ár samfellt.

Ef formaður hættir tekur varaformaður sæti formanns fram til næsta aðalfundar. Skal á þeim aðalfundi kjósa nýjan formann til loka kjörtímabils.  

Ef varaformaður hættir skal á næsta fundi stjórnar kjósa nýjan varaformann úr hópi meðstjórnenda fram að næsta aðalfundi þar sem kjósa á varaformann.  

Kalla skal inn varafulltrúa í stjórn þegar stjórnarmeðlimur forfallast til lengri tíma, ef varaformaður tekur sæti formanns, sbr. 4. mgr., og ef varaformaður hættir. Fyrst skal kalla inn þann varafulltrúa sem lengra er kominn á kjörtímabili sínu. Varafulltrúi getur hvort heldur tekið sæti í stjórn út kjörtímabil hins forfallaða eða tímabundið eftir atvikum.

3.4 Kjararáð

Kjararáð er skipað alls tuttugu fulltrúum úr hópi félagsfólks. Stjórn situr í kjararáði og leiðir formaður stjórnar jafnframt ráðið og boðar fundi þess. Ellefu fulltrúar ráðsins eru kjörnir úr hópi félagsfólks á aðalfundi til tveggja ára í senn og skal leitast við að einn fulltrúi að lágmarki sitji í ráðinu frá hverjum markaði sem félagið á samningsaðild að. Fimm fulltrúa skal kjósa í ráðið á aðalfundi annað hvert ár á jafnri tölu og sex fulltrúa hitt árið. Þá skulu trúnaðarmenn félagsins auk þess eiga tvo fulltrúa í ráðinu sem kjörnir eru á starfsdegi trúnaðarmanna til tveggja ára í senn, sbr. grein 4.1.  

Hlutverk ráðsins er að fylgja eftir stefnu og ákvörðunum aðalfundar og vera samráðsvettvangur félagsfólks. Kjararáð skipar samninganefndir félagsins. Þá er kjararáð ráðgefandi stjórn og formanni félagsins varðandi stærri málefni í starfsemi félagsins s.s. kjarasamningagerð og stærri verkefni sem upp kunna að koma. Aðalfundur sem og stjórn geta falið kjararáði sérstök verkefni ef nauðsyn ber til.  

Kjararáð skal að jafnaði funda fjórum sinnum á ári ​​​auk þess að​ halda árlegan starfsdag.  

3.5 Kjörstjórn

Tveggja meðlima kjörstjórn hefur umsjón með framkvæmd kosninga til embætta í félaginu og skal hún kjörin annað hvert ár á aðalfundi til tveggja ára í senn. Auk meðlimanna tveggja situr lögfræðingur félagsins í kjörstjórn og er starfsmaður hennar. Meðlimir kjörstjórnar skulu ekki eiga sæti í stjórn félagsins eða kjararáði þess.  

Kjörstjórn heldur utan um og framkvæmir atkvæðagreiðslu vegna kosninga í embætti á vegum félagsins og tekur jafnframt við framboðum. Kjörstjórn skal upplýsa um fyrirkomulag kosninga eigi síðar en tveimur vikum fyrir lok framboðsfrests.  

Kjörstjórn skal setja sér verklagsreglur sem skulu staðfestar á aðalfundi, ​​​​sbr. 11. tölulið 4. mgr. 2.1.

Kjörstjórn sker úr um kjörgengi og kosningarétt og hefur umsjón með talningu atkvæða og sker úr um réttmæti vafaatkvæða. Ákvarðanir kjörstjórnar eru endanlegar.

Kjörstjórn skal útbúa og samþykkja kjörskrá um allt kosningabært félagsfólk samkvæmt félagatali 1. mars ár hvert.

Kjörstjórn skal tryggja að félagsfólk geti kynnt sér þá frambjóðendur sem eru í kjöri áður en atkvæðagreiðsla hefst og tryggja að upplýsingar sem eru veittar til frambjóðenda séu þær sömu. Kjörstjórn skal gæta hlutleysis í störfum sínum gagnvart frambjóðendum. Kjörstjórn er heimilt að leita atbeina starfsfólks félagsins við framkvæmd og undirbúning kosninga. Ef kjörstjórn ákveður að kosningar skuli fara fram í aðdraganda aðalfundar félagsins eftir að framboðsfresti lýkur, skulu niðurstöður þeirra tilkynntar á fundinum í samræmi við dagskrá hans og öðlast þá gildi.

Stjórn getur falið kjörstjórn að annast aðrar kosningar eða verkefni þeim tengdum en í ákvæðum þessum greinir.

3.6 Siðanefnd

Siðanefnd starfar á vegum félagsins og skal hún kjörin á aðalfundi til tveggja ára í senn. Í nefndinni sitja þrír fulltrúar úr hópi félagsfólks og skulu fulltrúarnir ekki gegna öðrum trúnaðarstörfum fyrir félagið. Aðalfundur setur nefndinni starfsreglur.

4 Kjaramál og trúnaðarmenn

4.1 Trúnaðarmenn

Stjórn félagsins skal beita sér fyrir að trúnaðarmenn séu kjörnir á vinnustöðum félagsfólks. Formaður skal boða starfsdag trúnaðarmanna einu sinni á ári í kjölfar aðalfundar, eigi síðar en í lok september. Þá getur formaður kallað trúnaðarmenn til fundar oftar ef nauðsyn krefur.  

Trúnaðarmenn kjósa sér tvo fulltrúa í kjararáð á starfsdegi trúnaðarmanna til tveggja ára í senn, einn í senn annað hvort ár, sbr. grein. 3.4. Fulltrúi í kjararáði situr í ráðinu á milli starfsdaga. Hætti fulltrúi í ráðinu sem trúnaðarmaður skal stjórn boða fund trúnaðarmanna þar sem nýr fulltrúi er valinn til loka tímabilsins.

4.2 Samninganefndir

Kjararáð skipar samninganefndir félagsins gagnvart mismunandi viðsemjendum eftir þörfum úr hópi kjararáðs, stjórnar og sérfræðinga félagsins eða annars félagsfólks ef með þarf. Formaður skal rita skipunarbréf til handa samninganefndum hverju sinni þar sem skipunartími kemur fram sem og hvaða viðsemjandi á í hlut.  

Formaður leiðir störf samninganefnda og undirritar alla jafna kjarasamninga félagsins ásamt viðkomandi samninganefnd.

4.3 Samstarfsnefndir

Samstarfsnefndir starfa samkvæmt ákvæðum kjarasamninga félagsins og taka á ágreiningsefnum við túlkun kjarasamninga svo og endurskoðun stofnanasamninga. Formaður FÍN skipar fulltrúa félagsins í nefndirnar.

4.4. Kröfugerð

Drög að kröfugerð skal unnin af kjararáði í aðdraganda kjaraviðræðna fyrir þá markaði sem samið er á. Kröfugerð varðandi stofnanasamninga skal unnin af formanni og starfsfólki skrifstofu í samstarfi við trúnaðarmenn viðkomandi stofnunar og kjararáði eftir þörfum.

4.5 Kjarasamningar

Kjarasamninga skal undirrita með fyrirvara um samþykki viðkomandi félagsfólks í allsherjaratkvæðagreiðslu. Stjórn félagsins ákveður hvort leita eigi samþykkis viðkomandi félagsfólks með atkvæðagreiðslu þegar um réttindasamninga og tengisamninga er að ræða.

4.6 Aðgerðir

Tillaga um boðun verkfalls skal borin undir atkvæði félagsfólks sem málið varðar í samræmi við viðeigandi ákvæði laga og ræður meirihluti greiddra atkvæða úrslitum. Stjórn FÍN skal setja verklagsreglur um framkvæmd atkvæðagreiðslu um verkföll.

4.7 Kjaradeilusjóður

Félagið starfrækir kjaradeilusjóð. Skipa skal þriggja fulltrúa stjórn sjóðsins úr röðum félagsfólks á aðalfundi ​​​​​​til tveggja ára í senn. Sjóðstjórn skal setja fram reglur um starfsemi sjóðsins og skulu þær hljóta samþykki aðalfundar. Stjórn sjóðsins skal meta með greiningum hverju sinni hver nauðsynleg stærð sjóðsins skuli vera með tilliti til fjölda félagsfólks. Aðalfundur ákvarðar tekjustofn sjóðsins hverju sinni, en sjóðstjórn leggur fram tillögur um slíkt fyrir fundinn. Eignum kjaradeilusjóðs og tekjum skal haldið algerlega aðgreindum frá öðrum fjármunum félagsins og er óheimilt að verja þeim til annarra þarfa en þeirra sem falla undir reglur um starfsemi sjóðsins nema með ákvörðun aðalfundar.

5 Samstarf

5.1 Fagfélög

Stjórn skal leitast við að stofna til samstarfs við fagfélög á fjölbreyttum fagsviðum félagsfólks m.a. með samstarfssamningum í samræmi við markmið félagsins. Stjórn skal gera ráð fyrir þessum þætti starfseminnar í fjárhagsáætlun hverju sinni. Gæta skal jafnræðis við samskipti og samninga við einstök fagfélög.  

5.2 Nemenda- og hagsmunafélög

Stjórn skal leitast við að stofna til samstarfs við nemenda- og hagsmunafélög með áherslu á fjölbreytt fagsvið félagsfólks í samræmi við hlutverk félagsins, m.a. með samstarfssamningum. Stjórn skal gera ráð fyrir þessum þætti í fjárhagsáætlun félagsins. Gæta skal jafnræðis við samskipti og samninga við einstök félög.

5.3 Önnur stéttarfélög

Stjórn vinnur að góðum samskiptum og samstarfi við önnur stéttar- og fagfélög í samræmi við markmið félagsins með hagsmuni félagsfólks að leiðarljósi.  

6 Önnur ákvæði

6.1 Reikningsár

Reikningsár félagsins er almanaksárið. Stjórn gengur frá samningi við löggilda endurskoðendur sem yfirfara reikninga félagsins.

6.2 Lagabreytingar

Lögum þessum er aðeins hægt að breyta á lögmætum aðalfundi með tveimur þriðju hlutum greiddra atkvæða. Tillögur til lagabreytinga skulu hafa borist stjórn félagsins fyrir 1. mars. Tillögur um lagabreytingar skulu tilkynntar í fundarboði.

6.3 Gildistími

Lög þessi öðlast gildi 26. mars 2026. Jafnframt falla eldri lög félagsins úr gildi.

Bráðabirgðaákvæði:

Þeir sem áður hafa fengið aðild að félaginu í gegnum aukaaðild, nú nemaaðild, halda sinni aðild á meðan rof kemur ekki í greiðslu félagsgjalds.

Stjórn
Takmörkun á fjölda fulltrúa í stjórn tekur ekki að fullu gildi fyrr en á aðalfundi 2028. Kjósa skal um tvo aðalfulltrúa og einn varafulltrúa á aðalfundi 2027 og þrjá aðalfulltrúa og einn varafulltrúa á aðalfundi 2028.

Takmörkun á samfelldri heildarlengd stjórnarsetu, sbr. gr. 3.1., tekur fyrst gildi við kjör stjórnarfulltrúa á aðalfundi 2027.

Trúnaðarmenn kjósa einn fulltrúa í stjórn, sem jafnframt er fulltrúi trúnaðarmanna í kjararáði, til aðalfundar 2027.

Framkvæmdastjórn
Framkvæmdastjórn skal starfa með óbreyttu sniði fram að aðalfundi 2027. Þar sitja formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og einn meðstjórnandi.

Embætti fulltrúa
Fulltrúar í stjórn sem kjörnir voru á aðalfundir 2026 sem og þeir fulltrúar sem sitja í stjórn frá aðalfundi 2025 halda sínum embættum.

Formaður og varaformaður
Á aðalfundi 2026 var formaður kjörinn til tveggja ára. Skal fyrst kjósa formann til fjögurra ára á aðalfundi 2028 og á fjögurra ára fresti eftir það. Takmörkun á samfelldri heildarlengd setu formanns, sbr. gr. 3.3, tekur fyrst gildi við fyrsta kjör formanns til fjögurra ára á aðalfundi 2028. 

Varaformaður skal kosinn til tveggja ára á aðalfundi 2027 og tekur þá takmörkun á samfelldri heildarlengd setu varaformanns gildi, sbr. gr. 3.3.

Kjararáð
Þrátt fyrir ákvæði um kjararáð þá skal ráðið vera skipað fram til aðalfundar 2027 af: Formanni, varaformanni, 17 meðlimum stjórnar og einum fulltrúa trúnaðarmanna.  

Á aðalfundi 2027 skal kjósa um sex fulltrúa í kjararáð til tveggja ára og trúnaðarmenn kjósa sér einn fulltrúa til tveggja ára. Ráðið skal skipað til aðalfundar 2028 af: Formanni, varaformanni, 11 meðlimum stjórnar, sex fulltrúum kjörnum af aðalfundi, einum fulltrúa trúnaðarmanna.

Kjörstjórn
Þrátt fyrir ákvæði um kjörstjórn skal kjararáð skipa fulltrúa í kjörstjórn á fyrsta fundi sínum ​​​​á árinu 2026. Á aðalfundi 2027 skal kjósa í kjörstjórn.

Samþykkt á aðalfundi FÍN þann 26. mars 2026.