Vinnuverndarvikan 2017
Vinnueftirlitið stendur fyrir vinnuverndarráðstefnum 6. og 19. október undir yfirskriftinni "Vinnuvernd alla ævi ".
6. október - Vinnuvernd alla ævi – Er hægt að eldast í ferðaþjónustu?
Vinnueftirlitið stendur fyrir vinnuverndarráðstefnu sem ber yfirskriftina "Vinnuvernd alla ævi – Er hægt að eldast í ferðaþjónustu?" og verður hún haldin á Hótel Borgarnesi 6. október kl. 13-16.
Á ráðstefnunni verður sjónum beint að mikilvægi vinnuverndar í ferðaþjónustu og áhrifum vinnuumhverfisins á starfsmenn. Aðgangur að ráðstefnunni er öllum opin án endurgjalds en skráning er skilyrði. Fjölbreyttur hópur fyrirlesara mun taka þátt í ráðstefnunni og hvetjum við alla þá sem láta sig málefnið varða að skrá sig á viðburðinn á heimasíðu stofnunarinnar, www.vinnueftirlit.is.
Dagskrá:
13:00 Setning
Margrét Björnsdóttir, stjórnarformaður Vinnueftirlitsins
13:10 Sjálfbærni í ferðaþjónustu – hvar kemur vinnuvernd inn?
Helga Árnadóttir, Samtök ferðaþjónustunnar
13:30 Áhættumat í ferðaiðnaði
Friðjón Axfjörð, sérfræðingur hjá Samgöngustofu
13:50 Dagur í lífi leiðsögumanns - í ljósi vinnuverndar
Jakob Jónsson, Félag leiðsögumanna
14.10 Áskoranir eldra fólks á vinnumarkaði
Óskar Marinó Sigurðsson, mannauðsráðgjafi
14:30 Hlé
14:50 OiRA- rafrænt verkfæri til að gera áhættumat á veitingastöðum
Guðmundur Kjerúlf, verkefnastjóri, Vinnueftirlit ríkisins
15:10 Vakinn – hvernig er tekið á vinnuverndarþáttum?
Ólöf Ýr Atladóttir, ferðamálastjóri
15:30 Er til gæðaumhverfi fyrir starfsmenn í ferðaþjónustu?
Þórir Erlingsson, Háskólinn á Hólum
15:50- 16:00 Samantekt og ráðstefnu slitið
Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlitsins
Ráðstefnustjóri er Þórunn Sveinsdóttir hjá Vinnueftirlitinu. Nánari upplýsingar um ráðstefnuna gefa Guðmundur Þór Sigurðsson (gts@ver.is) og Jóhann Friðrik Friðriksson (johann@ver.is) hjá Vinnueftirlitinu.
19. október - Vinnuvernd alla ævi – eflum sjálfbæra starfsævi.
Þann 19. október nk. stendur Vinnueftirlitið fyrir ráðstefnu á Grand Hótel í Reykjavík sem ber yfirskriftina “Vinnuvernd alla ævi – eflum sjálfbæra starfsævi“. Forvarnir vegna vinnuslysa, heilsufarsvandamála og starfstengdra sjúkdóma eru nauðsynlegar alla starfsævina en áherslan að þessu sinni er á starfsumhverfi þeirra starfsmanna sem komnir eru yfir miðan aldur. Gestafyrirlesari á ráðstefnunni verður Dr. Joanne Crawford sem starfar hjá Fagstofnun um atvinnusjúkdóma (Institute of Occupational Medicine) í Edinborg í Skotlandi. Dr. Crawford hefur unnið að rannsóknum á sviði vinnuvistfræði, lýðheilsu og vinnuverndar um langt skeið og meðal annars skoðað heilsutengt samspil á milli vinnuumhverfis og aldurs starfsmanna. Ásamt Dr. Crawford mun góður hópur fyrirlesara halda erindi um ýmis málefni sem eiga það sameiginlegt að tengjast vinnuumhverfi eldra starfsfóks á Íslenskum vinnumarkaði. Aðgangur að ráðstefnunni er án endurgjalds en skráning er skilyrði og fer fram á heimasíðu stofunarinnar, vinnueftirlit.is
Dagskrá:
13:00 Setning
Þorsteinn Víglundsson, ráðherra félags- og jafnréttismála
13:10 Geta og takmarkanir eldri starfsmanna
Joanne Crawford
13:55 Vaktavinna, svefn og heilsa
Björg Þorleifsdóttir, lektor Háskóla Íslands
14:15 Heilsuefling í vinnu
Jóhann Friðrik Friðriksson, sérfræðingur Vinnueftirlitinu
14:35 Hlé
14:55 Tilraunaverkefni um styttingu vinnuvikunnar
Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri BSRB.
15:15 Hvernig geta þjónustuaðilar stutt vinnuvernd og áhættumat fyrirtækja?
Guðmundur Kjerúlf, verkefnastjóri Vinnueftirlitinu
15:35 (Kostir þess að hafa eldri starfsmenn í vinnu)
Sigurður Pálsson forstjóri Byko
15:55- 16:00 Samantekt og ráðstefnu slitið
Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlitsins
Ráðstefnustjóri er Guðmundur Þór Sigurðsson hjá Vinnueftirlitinu. Nánari upplýsingar um ráðstefnuna gefa Guðmundur (gts@ver.is) og Jóhann Friðrik Friðriksson (johann@ver.is) hjá Vinnueftirlitinu.