13 jan. 2015

Orlofssjóður BHM - Umsóknafrestir!

Vinsamlegast hafið í huga að nú er verið að taka við umsóknum um leigu á orlofshúsum BHM um páskana, innanlands í sumar og erlendis í sumar.  Allar frekari upplýsingar eru á bókunarvefnum.

Vinsamlegast hafið í huga að nú er verið að taka við umsóknum um leigu á orlofshúsum BHM um páskana, innanlands í sumar og erlendis í sumar.  Allar frekari upplýsingar eru á bókunarvefnum.

Umsóknarfrestur rennur út sem hér segir:

Útlönd  á miðnætti                   12. febrúar  2015

Páskar   á miðnætti                   26. febrúar 2015

Sumarið innanlands 2015        31. mars 2015

Lýsingar og myndir af húsum er hægt að skoða hér.  

Árlegt orlofsblað Orlofssjóðs BHM er í loklafrágangi og ætti að berast  til ykkar mjög fljótlega, þar eru húsin og íbúðirnar sem eru í boði kynnt með stuttri lýsingu og mynd.  
Blaðið verður einnig hægt að skoða á heimasíðu Orlofssjóðsins.

Orlofssjóður BHM er á facebook, þangað setjum auglýsingar um sumarhús sem losna með stuttum fyrirvara og fleira tengt orlofssjóðnum. Því hvetjum við ykkur sem notið þann miðil til að líka við okkur þar.