1 nóv. 2017

Tinna Dögg Guðlaugsdóttir ráðin verkefnastjóri FÍN.

Við bjóðum Tinnu hjartanlega velkomna til starfa! 

Félag íslenskra náttúrufræðinga hefur ráðið til starfa Tinnu Dögg Guðlaugsdóttur lögfræðing. Tinna mun sinna starfi verkefnastjóra sem m.a. mun veita ráðgjöf til félagsmanna, koma að gerð stofnanasamninga og úrlausn einstaklingsmála. Tinna hefur lokið ML prófi í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og er einnig með diploma í starfsmannahaldi og stjórnun,frá sama skóla. Þar að auki hefur hún víðtæka reynslu af starfi stéttarfélaga en hún starfaði um árabil hjá VR.  

Við bjóðum Tinnu hjartanlega velkomna til starfa!