26 sep. 2016

Opinn upplýsingafundar um stöðu lífeyrismála fyrir félagsmenn aðildarfélaga BHM.

Á morgun, þriðjudaginn 27. september, kl. 16:30–18:00 í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6, Rvk. (4. hæð).

Á morgun, þriðjudaginn 27. september, kl. 16:30–18:00 í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6, Rvk. (4. hæð).

Á morgun, þriðjudaginn 27. september, efnir BHM til opins upplýsingafundar um stöðu lífeyrismála fyrir félagsmenn aðildarfélaga bandalagsins. Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM, og Páll Halldórsson, fulltrúi bandalagsins í viðræðunefnd um lífeyrismál, kynna samkomulag um breytt fyrirkomulag lífeyrismála opinberra starfsmanna og svara spurningum fundarmanna.

Fundurinn verður haldinn kl. 16:30–18:00 í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6, Rvk. (4. hæð).

Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna á fundinn.