5 mar. 2015

Ályktun félagsfundar 5. mars

Félagsfundur FÍN meðal ríkisstarfsmanna var haldinn 5. mars sl. og var þar samþykkt ályktun þar sem fyrirhuguðum breytingum á lögum um Stjórnarráð Íslands er mótmælt harðlega, sjá nánar.

Félagsfundur Félags íslenskra náttúrufræðinga mótmælir harðlega þeim fyrirhugðu breytingum á lögum um Stjórnarráð Íslands sem koma fram í frumvarpi (þingskjali 666) sem lagt hefur verið fram á Alþingi þann 3. desember 2014.

Því er mótmælt að vald til að ákveða staðsetningu og flutning ríkisstofnana sé fært frá Alþingi til ráðherra. Slíkt valdaframsal eykur stórlega hættu á því að ráherrar geti að eigin geðþótta og án faglegs undirbúnings tekið ákvarðanir sem ekki geta talist til góðra stjórnsýsluhátta. Geta þær valdið verulegum skaða á starfsemi stofnana og vegið stórlega að réttindum og kjörum starfsfólks.

Einnig er jafnframt varað við hugmyndum um útvíkkun heimildar til að flytja starfsmenn á milli stofnana. Með því er dregið úr auglýsingaskyldu um opinberar stöður og búið í haginn fyrir að ráðningar í lausar stöður verði, enn frekar en nú er, teknar á öðrum grundvelli en þeim sem faglegur getur talist.

Fundurinn lýsir yfir stuðningi við baráttu starfsmanna á Fiskistofu, sem undanfarið hafa verið í eldlínunni í andstöðunni við ofangreind áform ráðamanna. Þótt áðurnefnt frumvarp sé beinlínis fram komið til þess að knýja í gegn ólöglega ákvörðun ráðherra um flutning höfuðstöðva Fiskistofu þá varðar það hagsmuni allra opinberra starfsmanna. Minnt er á að skýrt hefur komið fram hjá stjórnvöldum að þetta sé einungis fyrsta skrefið af því sem gæti jafnvel orðið að stórfelldum hreppaflutningum opinberra stofnana og starfa.

Fundurinn hvetur því alla opinbera starfsmenn til að sameinast í baráttunni gegn ofangreindu frumvarpi. Minnt er á dóm Hæstaréttar í máli Landmælinga (nr.312/1998) og skorað á Alþingismenn að standa vörð um sjálfstæði löggjafarvaldsins og virðingu réttarríkisins í landinu.

Samþykkt á félagsfundi Félags íslenskra náttúrufræðinga

Reykjavík, 5. mars 2015.