FÍN SENDIR KÆRU TIL MANNRÉTTINDADÓMSTÓLS EVRÓPU
Félag íslenskra náttúrufræðinga (FÍN) hefur ritað Mannréttindadómstól
Evrópu (MDE) kæru vegna skipunar Félagsdóms, sem stéttarfélagið telur að brjóti
í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu. Telur FÍN að það fyrirkomulag í
íslenskum lögum að Hæstiréttur tilnefni meirihluta dómara Félagsdóms feli í sér
brot á reglu mannréttindasáttmálans sem ætlað er að tryggja sjálfstæðan, óháðan
og óvilhallan dómstól.




