Því langar okkur að efna til ljósmyndakeppni meðal félagsfólks á ný. Við óskum jafnframt eftri því að fólk sendi inn myndir sem það gefur leyfi fyrir að séu notaðar á heimasíðu FÍN og á samfélagsmiðlum, en við munum gæta þess að virða höfundarrétt og nefna ávallt myndhöfund eins og lög gera ráð fyrir.
Að þessu sinni er þemað haustlitirnir, en við viljum að sjálfsögðu sjá flóru og fánu Íslands í haustlitunum, landslagið og félagsfólk okkar.
1. FÍN-arar að störfum
2. Landslag Íslands
4. Opinn flokkur
Athugið að ekki þarf að skila inn myndum í alla flokka til að taka þátt. Eina skilyrðið fyrir þátttöku er að vera félagi í FÍN.
Óháð dómnefnd mun velja bestu þrjár myndirnar í hverjum flokki og verða þær birtar á vefmiðlum félagsins. Veitt verða verðlaun í hverjum flokki fyrir sig sem og fyrir bestu myndina heilt yfir. Í verðlaun verða glæsileg gjafabréf að upphæð 20.000-50.000 kr.
Við óskum eftir að fá myndirnar sendar í gegnum skráardeiliþjónustur eins og Dropbox, Google Drive eða álíka á netfangið fin@fin.is Skilafrestur er 15. október 2026.
Hér eru verðlaunamyndir síðasta árs.
FÍN áskilur sér rétt til að nota myndir sem berast í keppnina í kynningarefni félagsins. Greitt verður sérstaklega fyrir notkun mynda sem birtast í markaðsefni.
