Sigurmyndin í flokknum Fínarar að störfum er mynd eftir Reyni Frey Jakobsson en á henni er verið að taka sýni úr Laugarvatni í ljósaskiptunum.
Í öðru sæti var myndin Netum kastað eftir Unu Bjarnadóttur.

Í þriðja sæti var mynd eftir Pavla Dagsson-Waldhauserova: Rannsóknir á sífrera.
Í flokkinn „Landslag Íslands“ bárust tæplega 60 myndir.
Í fyrsta sæti var mynd af Vestrahorni eftir Samuel Casás. Til gamans má geta að Vestrahorn er eitt af fáum fjöllum á Íslandi úr bergtegundinni gabbró, sem stundum er kallað horngrýti af gárungum.

Samuel var einnig í öðru sæti með glæsilega mynd af Hvanngili. Þess ber að geta að dómnefnd dæmdi myndirnar blint og hafði því engan grun um að sami ljósmyndari ætti báðar þessar myndir.

Í þriðja sæti var svo mynd af tilkomumiklum skriðjökli, ljósmyndari Sigurjón Einarsson

Í flokknum sem kallaður var „Dýr á láði og legi“ þróuðust mál þannig að myndir af fuglum tókum flokkinn nánast yfir og skipa sér líka í öll efstu sætin.
Verðlaunamyndin að mati dómnefndar, sem jafnframt var valin besta myndin í keppninni, er mynd af stóískum tjaldi í fjöruborði eftir Sigurjón Einarsson.

Í öðru sæti var líka mynd eftir Sigurjón, sem hefur greinilega mjög næmt auga fyrir því að mynda fugla, en það er mynd af straumönd að stinga sér til sunds, tekin á hárréttu augnabliki.

Í þriðja sæti varð svo Jóhann Finnur Sigurjónsson sem náði frábærri nærmynd af auðnutittlingi.
