Formaður FÍN ásamt framkvæmdastjóra félagsins lögðu land undir fót og heimsóttu Norðurland. Á Akureyri fara nú fram sameiginlegir vinnudagar 10 BHM félaga og að sjálfsögðu var tækifærið nýtt og félagsfólk heimsótt. Meðal annars var Náttúrustofa Norðausturlands á Húsavík heimsótt í blíðskaparveðri. Þar á bæ er nú ekki töluð vitleysan og margvíslegar rannsóknir stundaðir á náttúrunni af vísindafólki sem þekkir sannarlega sitt nærumhverfi. Þá var nýsköpunarfyrirtækið Genís á Siglufirði heimsótt. Fyrirtækið stundar rannsóknir og framleiðslu á lífvirkum efnum unnum úr hinu einstaka byggingarefni náttúrunnar kítíni. FÍN þakkar yndislegar móttökur félagsfólks.
12.05.2026
Vorheimsókn á Norðurland
FÍN vinnustaðaheimsókn á Norðurland. Akureyri, Húsavík og Siglufjörður heimsótt.
