Fara í efni
28.10.2026 Fréttir

Vegna uppsagna hjá Reykjavíkurborg

Þriðjudaginn 27. október var mörgu starfsfólki Reykjavíkurborgar sagt upp í stórri hópuppsögn. Félagsfólk sem hefur fengið uppsögn eða telur sig verða fyrir áhrifum af breytingunum er hvatt til að hafa samband við skrifstofu FÍN.

Deildu

Á skrifstofu FÍN verður farið yfir hvert mál fyrir sig og kannað meðal annars hvort málsmeðferð og rökstuðningur Reykjavíkurborgar samræmist lögum, kjarasamningum og reglum borgarinnar.

Félagsfólk sem uppsagnirnar snerta er hvatt til að varðveita öll gögn sem tengjast málinu, þar á meðal uppsagnarbréf, starfslýsingar, ráðningarsamninga og önnur samskipti við vinnuveitandann.

Mikilvægt er að hafa í huga að í uppsagnarfresti halda starfsmenn almennt réttindum sínum samkvæmt ráðningarsamningi og kjarasamningi, þar á meðal rétti til launa, orlofsávinnslu, lífeyrisiðgjöldum og öðrum umsömdum starfskjörum. Réttindi félagsfólks hjá Visku haldast jafnframt út uppsagnarfrestinn.

Viska veitir félagsfólki meðal annars ráðgjöf um:

  • lengd uppsagnarfrests og starfskjör á tímabilinu,
  • rétt til rökstuðnings og aðgangs að gögnum,
  • lögmæti og málsmeðferð uppsagnar,
  • áunnin réttindi og uppgjör við starfslok,
  • og önnur atriði sem tengjast uppsögninni og næstu skrefum.

FÍN og Viska bjóða jafnframt félagsfólki sínu sem starfar hjá borginni á fjarfund í gegnum Teams fimmtudaginn 29. október frá kl. 11:00-12:00.