Um er að ræða tímaritið Náttúrufræðinginn, innbundið frá upphafi útgáfu þess 1931 allt fram á tíunda áratug síðustu aldar. Hinn innbundni fjársjóður kemur úr dánabúi föður Guðmundar, Páls Guðmundsson sem lést nýverið.
Það var hins vegar afi Guðmundar og alnafni sem batt sjálfur inn tímaritið forðum, en Guðmundur Pálsson eldri var mikill áhugamaður um náttúrurfræði og safnaði ýmsum munum því tengdu um ævina.
Nýverið var útgáfu Náttúrufræðingsins hætt, sem er mjög miður. Það væri sannarlega þess virði að vinna að endurvakningu tímaritsins.
FÍN þakkar Guðmundi Pálssyni gjöfina.
