Í haust undirrituðu fulltrúar Félags háskólakennara, Félags háskólakennara á Akureyri, FÍN – Félags íslenskra náttúrufræðinga og Félags prófessora í ríkisháskólum, tímamóta samstarfssamning nýjan greiningarsjóð - Greiningarsjóð háskólafélaganna.
Markmið sjóðsins er að vinna greiningar á högum háskólamenntaðra sérfræðinga og akademísks starfsfólks, sem og vinna að greiningum og tölulegum undirstöðuverkefnum í þágu háskólafólks.
Heimasíðan sett í loftið
Halldór Valgeirsson, sérfræðingur í greiningum, er starfsmaður sjóðsins og hefur unnið ötult starf fyrir sjóðinn í vetur. Á dögunum var ný heimasíða fyrir sjóðinn sett í loftið og Halldór kynnti glænýja greiningu á kjörum háskólamenntaðra af því tilefni.
Heimasíðan er með slóðina www.greiningarsjodur.is.
Lesa má um nýju greininguna í þessari frétt á heimasíðu sjóðsins.
Nýr formaður stjórnar
Á fundi sjóðsins var einnig tilkynnt um að nýr formaður stjórnar sjóðsins tæki nú formlega við, en það er Hjördís Sigursteinsdóttir (FHA) sem tekur við formannssætinu af Baldvin M. Zarioh (FH). Baldvin steig nýverið úr formannsstóli Félags háskólakennara og tekur Íris Davíðsdóttir, nýr formaður Félags háskólakennara, sæti hans í stjórn sjóðsins.

