Fara í efni
30.10.2026 Fréttir

Veðurfræðifélagið og FÍN undirrita samstarfssamning

Samstarfssamningurinn var undirritaður á haustþingi veðurfræðifélagsins. 

Deildu

Á dögunum undirrituðu Þorkell Heiðarsson, formaður FÍN, og Guðrún Nína Petersen, formaður Veðurfræðifélagsins, samstarfsyfirlýsingu félaganna. Veðurfræðifélagið var stofnað 23. mars árið 1954 og er þar með 72 ára gamalt.

Með samstarfssamningnum er formfest samstarf FÍN við eitt af elstu fagfélögunum innan vébanda þess. Markmiðið með samstarfinu er að vera báðum aðilum til heilla, auka sýnileika félaganna og styrkja faglegan grundvöll félagsfólks FÍN. 

Við hlökkum til að efla fagið og samstarfið í vetur.