Fara í efni
21.09.2026 Fréttir

Upplýsingafundur vegna Stofnunar atvinnuveganna

Mikil óvissa ríkir enn um Stofnun atvinnuveganna (STAV) og hvaða áhrif breytingarnar munu hafa á starfsfólk þeirra stofnana og starfseininga sem eiga að renna inn í hina nýju stofnun.

Deildu

Fjöldi spurninga um stöðu starfsfólks, störf, starfsstöðvar, kjör og framkvæmd breytinganna er enn ósvarað. Að ósk félagsfólks boða FÍN, Dýralæknafélag Íslands, Sameyki, Stéttarfélag lögfræðinga og Viska því til sameiginlegs fundar.

Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 22. september 2026, kl. 12:00

Staðsetning: Salur Visku, 3. hæð, Borgartúni 27
Fjar- og staðfundur: Hægt verður að taka þátt í gegnum fjarfund.

Fundurinn er ætlaður starfsfólki Matvælastofnunar, Fiskistofu, Verðlagsstofu skiptaverðs og heilbrigðiseftirlita sem breytingarnar taka til.

Dagskrá: 

  • Staða mála vegna STAV
  • Réttarstaða og starfskjör
  • Upplýsingagjöf og samráð
  • Spurningar og sjónarmið starfsfólks
  • Næstu skref og samskipti við ráðuneytið
     

Markmið fundarins er að fá skýra mynd af þeim álitaefnum sem helst brenna á starfsfólki og tryggja að þau verði sett fram með sameiginlegum og afdráttarlausum hætti gagnvart ráðuneytinu.

Teams hlekkur á fundinn sem hefst kl. 12:00.

Við hvetjum ykkur eindregið til að mæta og koma spurningum og sjónarmiðum ykkar á framfæri.
Góðar kveðjur,
Bára Eyfjörð Heimisdóttir, formaður DÍ
Brynhildur Heiðar Ómarsdóttir, formaður Visku
Jóhann Gunnar Þórarinsson, formaður SL
Kári Sigurðsson, formaður Sameykis
Þorkell Heiðarsson, formaður FÍN