Fara í efni
11.09.2026 Fréttir

Töfrar jöklanna - ráðstefna 18.-19. september

Á ráðstefnunni Töfrar jöklanna - þverfagleg nálgun verður fjallað um jökla frá ólíkum og spennandi sjónarhornum. Ráðstefnan verður á Kirkjuhvoli, Kirkjubæjarklaustri.

Deildu
Mynd: Sigurjón Einarsson
Svínafellsjökull. Mynd: Sigurjón Einarsson

Skoðað verður hvernig jöklar móta landið, náttúruna og lífríkið,  áhrif þeirra á fólk og samfélög og hvað framtíð þeirra kann að bera í skauti sér.

Að ráðstefnunni standa Rannsóknarsetur HÍ á Höfn, Náttúrstofa Suðausturlands, Vatnajökulsþjóðgarður og Kirkjubæjarstofa.

Kynntar verða meðal annars rannsóknir á jöklum, eldvirkni og loftslagsbreytingar, hvernig jöklar hafa þróast í gegnum tíðina og landið sem kemur í ljós þegar þeir hopa. Einnig verður horft til lífsins í og við jökla, allt frá örsmáum lífverum til gróðurs sem nemur nýtt land.

Jöklarnir verða jafnframt skoðaðir út frá menningu, sögu, bókmenntum og listum. Rætt verður um tengsl manns og jökuls, hvernig jöklar hafa birst í þjóðsögum og skáldskap og hvernig listir geta hjálpað okkur að upplifa og skilja þær miklu breytingar sem nú eiga sér stað í náttúrunni.

Ráðstefnan gefur þannig fjölbreytta mynd af jöklunum – sem náttúrufyrirbærum, lifandi vistkerfum, menningarlegum táknum og mikilvægum hluta af framtíð Íslands. Hún býður upp á tækifæri til að kynnast jöklunum betur, frá ólíkum sjónarhornum og með ólíkar spurningar að leiðarljósi.

 Hópur fyrirlesara endurspeglar mikla fjölbreytni þekkingar og reynslu, allt frá raunvísindum og félagsvísindum til lista, kvikmyndagerðar og menntamála

Skráning og nánari upplýsingar á viðburðarsíðu.