Fara í efni
09.03.2026 Fréttir

Samstarf við EFNÍS formlega innsiglað

EFNÍS, efnafræðifélag Íslands, bættist á dögunum í hóp þeirra fagfélaga sem FÍN á í formlegu samstarfi við þegar þeir Benjamín Ragnar Sveinsson, formaður EFNÍS, og Þorkell Heiðarsson, skrifuðu undir samstarfsyfirlýsingu fyrir aðalfund EFNÍS.

Deildu

Samstarf FÍN og EFNÍS er að vísu löngu hafið en félögin voru m.a. í góðu samstarfi haustið 2024 þegar Efnís hélt sína 10. ráðstefnu. En nú er loks búið að handsala samstarfið formlega og við hlökkum til að halda þessu góða samstarfi áfram

Fundarmenn stilltu sér upp ásamt formanni FÍN fyrir myndatöku
Fundarmenn stilltu sér upp ásamt formanni FÍN fyrir myndatöku.
Formennirnir kampakátir með samstarfið
Formennirnir kampakátir með samstarfið.