Í vikunni undirrituðu þau Þorkell Heiðarsson, formaður FÍN, og Björg Torfadóttir, framkvæmdastjóri Arkitektafélags Íslands, samstarfsyfirlýsingu félaganna.
Arkitektafélagið bætist þar með í hóp fagfélaga sem FÍN á í samstarfi við. Markmiðið með sasmtarfinu er að vera báðum aðilum til heilla, auka sýnileika félaganna, styrkja faglegan grundvöll félagsfólks, stuðla að faglegri umræðu og um leið að efla starf fagfélagsins.
Við hlökkum til að efla fagið og samstarfið í vetur.
