Fara í efni
12.10.2026 Fréttir

Réttindi stundakennara tryggð með undirritun nýs stofnanasamnings FÍN og HÍ

Um árabil hefur fjöldi félagsfólks FÍN sinnt stundakennslu við Háskóla Íslands án þess að vera á launaskrá skólans og þar með án þess að njóta kjarasamningsbundinna réttinda gagnvart Háskólanum.

Deildu
Mynd: Jóhann Finnur Sigurjónsson

Langþráðu markmið var náð í september síðastliðnum þegar undirritaður var stofnanasamningur milli Félags íslenskra náttúrufræðinga (FÍN) og Háskólans þar sem réttindi stundakennara voru tryggð. 

Stofnanasamningurinn skapar skýrari umgjörð um ráðningarsamband stundakennara sem eiga aðild að FÍN og tryggir þeim viðeigandi réttindi samkvæmt kjarasamningi FÍN og ríkisins. Þar er meðal annars um að ræða réttindi sem tengjast launakjörum, orlofi, veikindum, lífeyri og öðrum starfstengdum réttindum. 

Stundakennarar geta gengið í FÍN 

Starfandi stundakennarar við Háskóla Íslands sem uppfylla skilyrði aðildar að FÍN geta gengið í félagið og notið þeirra kjara og réttinda sem stofnanasamningurinn tryggir félagsfólki. 

FÍN hefur lengi unnið að því að félagsfólk sem sinnir kennslu við Háskóla Íslands njóti þeirra kjara sem því ber samkvæmt kjarasamningum. Félagið fagnar því að þetta langþráða markmið sé nú í höfn og hvetur stundakennara við Háskóla Íslands til að kynna sér aðild að FÍN. 

Nýr stofnanasamningur undirritaður, frá vinstri: Ragnhildur Ísaksdóttir, Ragna Kemp Haraldsdóttir, Þorkell Heiðarsson og Orri Þrastarson