Stjórn FUMÍS hvetur alla sem áhuga hafa til að sækja ráðstefnuna, dagskráin er spennandi og fjölbreytt. Hana má skoða hér dagskrá Nordrocs 2026.
Þess má geta að fulltrúar FUMÍS eru í undirbúningsnefnd ráðstefnunnar og verða með fyrirlestur (keynote speakers) kl. 15 á þriðjudeginum. Markmið stjórnar FUMÍS er að ráðstefnan verði haldin á Íslandi við gott tækifæri á næstu árum.
Til loka maí er lægra þáttökugjald (early bird), sjá nánar hér: Snemmskráning.
FÍN minnir félagsfólk á að inni á Mínum síðum BHM getur það skoðað styrkjamöguleika sína og sótt um styrk fyrir ráðstefnum sem þessum.
