Fara í efni
27.05.2026 Fréttir

Nýstofnað Fagfélag matvælafræðinga bætist í hóp fagfélaga

Í vikunni var undirrituð samstarfsyfirlýsing FÍN og Fagfélags matvælafræðinga og bætist félagið þá í góðan hóp fagfélaga sem FÍN á í formlegu samstarfi við.

Deildu

Fagfélag matvælafræðinga er nýlega stofnað fagfélag þeirra sem starfa við matvælafræði eða hafa menntun á því sviði. Markmið félagsins er að efla samstarf fagfólks í greininni, stuðla að faglegri umræðu og vera vettvangur fyrir þá sem hafa áhuga á matvælafræði á Íslandi. 

Við hjá FÍN hlökkum til samstarfsins og þökkum þeim fyrir komuna.

Það voru þau Guðrún Svana Hilmarsdóttir fyrir hönd Fagfélags matvælafræðinga og Þorkell Heiðarsson, formaður FÍN, sem innsigluðu samstarfið formlega fyrir hönd félaganna.