Fara í efni
12.08.2026 Fréttir

Námskeið fyrir matsmenn

Undanfarin ár hafa Lögmannafélag Íslands og dómastólasýslan staðið fyrir námskeiði fyrir sérfræðinga sem vilja taka að sér að vera dómkvaddir matsmenn. 

Deildu
Mynd: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir

Námskeiðið fyrir matsmenn verður haldið 6. og 7. október næstkomandi. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja gefa kost á sér sem matsmenn fyrir dómi á sínu sérsviði, s.s. iðnaðarmönnum, tækni- og verkfræðingum, heilbrigðisstarfsfólki, lögfræðingum, sálfræðingum, viðskiptafræðingum og endurskoðendum.

Farið verður yfir:
- Ákvæði einkamálalaga sem varða störf matsmanna
- Samning matsgerða
- Undirbúningur matsfunda
- Uppsetning matsgerða
- Störf á vettvangi

Kennari: Viðar Lúðvíksson lögmaður hjá Landslögum.

Matsbókin: Leiðbeiningar fyrir dómkvadda matsmenn fylgir með námskeiðinu.

Nánari upplýsingar og skráning.