Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem hafa verið matsmenn eða vilja gefa kost á sér sem matsmenn fyrir dómi á sínu sérsviði, s.s. iðnaðarmönnum, tæknifræðingum, verkfræðingum, læknum, lögfræðingum, sálfræðingum, viðskiptafræðingum og endurskoðendum.
Með námskeiðinu fylgja ítarlegar leiðbeiningar fyrir dómkvadda matsmenn sem jafnframt hafa að geyma áhugaverða dóma sem snúa að störfum matsmanna.
- Kennari: Viðar Lúðvíksson lögmaður hjá Landslögum.
- Staðsetning: Fundarsalur í Safnaðarheimil Neskirkju við Hagatorg, 107 Reykjavík. Einnig er hægt að vera í fjarfundi.
- Tími: Alls sex klukkustundir. Þriðjudagur 1. okt. kl. 13.00-16.00 og miðvikudagur 2. okt. kl. 13.00-15.30. Tímasetning heimsóknar í Héraðsdóm Reykjavíkur verður auglýst síðar.
- Verð: kr. 55.000.
Smellið hér fyrir skráningu
