Fara í efni
03.06.2026 Fréttir

Málþing um íslenska refinn

Náttúrufræðistofnun býður til málþings um íslenska refinn. Málþingið verður haldið þriðjudaginn 9. júní 2026 kl. 13:00 í Eddu, húsi íslenskunnar og í streymi.

Deildu

Fjallað verður um fjölbreytta þætti í líffræði og vöktun íslenska refastofnsins. Meðal annars verður rætt um sérstöðu stofnsins, vöktun hans, erfðafræði og svipgerðir, breytingar á fæðuvali með hlýnandi loftslagi, afræningjatengsl og nýtt stofnlíkan. Einnig verður fjallað um refaveiðar og veiðigögn, sem og þátttöku refaskyttna í vöktun. Að loknum fyrirlestrum fara fram pallborðsumræður.

 Málþingið er öllum opið og aðgangur ókeypis. Tengill á streymi

9. júní 2026 kl. 13:00 í Eddu - húsi íslenskunnar