Fara í efni
11.02.2026 Fréttir

Lóa boðin velkomin til starfa

Hjá FÍN hefur tekið til starfa nýr „starfskraftur“ en það er spjallmennið Lóa. Hún hefur síðustu vikur gengið í gegnum stranga þjálfun hér innanhúss en Lóa byggir sína þekkingu alfarið á þeim gögnum sem er að finna á vef FÍN.

Deildu

Eins og almennt gildir um gervigreindarmállíkön ætti ekki að treysta Lóu eins og nýju neti en hún er engu að síður ansi klár, bæði þegar kemur að því að skilja og miðla upplýsingum. Viljum við því hvetja félagsfólk okkar til að prófa hana og hjálpa okkur að þjálfa hana áfram og þróa. Hún lofar í það minnsta ansi góðu og við vonumst til að hún muni nýtast félagsfólki okkar vel og verði öflug viðbót við skrifstofu félagsins.

Lóa er samstarfsverkefni FÍN og Avista. Það var svo myndlistarmaðurinn Elín Elísabet sem teiknaði Lóu fyrir okkur.