Fara í efni
13.08.2026 Fréttir

Grunnnámskeið í sýnatöku á menguðum jarðvegi

FUMÍS - Fagfélag um mengun á Íslandi, ætlar að standa fyrir grunnnámskeiði í sýnatöku á menguðum jarðvegi 29. og 30 september ef næg þáttaka fæst. 

Deildu
Mynd: Sigurjón Einarsson
Óðinshani. Mynd: Sigurjón Einarsson

FUMÍS - Fagfélag um mengun á Íslandi, ætlar að standa fyrir grunnnámskeiði í sýnatöku á menguðum jarðvegi 29. og 30 september ef næg þáttaka fæst. Á námskeiðinu verður farið yfir helstu atriði sem koma að grunnrannsóknum og sýnatöku á menguðum jarðvegi. Einnig verður farið í vettvangsferð til prófunar og þjálfunar á helstu sýnatökuaðferðum. Námskeiðinu stýrir reyndur aðili frá Norconsult sem hefur áður haldið námskeið fyrir FUMÍS.

Kostnaður er kr. 125.000 fyrir félaga í FUMÍS og kr. 145.000 fyrir aðra. Innifalið er 

  • Námsefni
  • Hádegismatur og kaffi báða daga
  • Vettvangsferð og sýnataka
  • Kvöldverður 29. september

Stjórn FUMÍS hvetur þau sem hafa áhuga á að sækja námskeiðið að skrá sig sem fyrst á heimasíðu félagsins.